Þjónustuaðili
Skatturinn
Upplýsingar um starf
Starf
Hugbúnaðarsérfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.10.2026
Umsóknarfrestur
09.11.2026
Hugbúnaðarsérfræðingur
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstaklingum í störf hugbúnaðarsérfræðinga, með áherslu á tollakerfi, í deild hugbúnaðarlausna á upplýsingatæknisviði Skattsins. Starfsstöð viðkomandi verður í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík.
Skatturinn er framsækinn vinnustaður sem gegnir lykilhlutverki við tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði, virkri samkeppni og vernd samfélagsins. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.
Deild hugbúnaðarlausna ber ábyrgð á hönnun, þróun, prófunum, rekstri og viðhaldi hugbúnaðarlausna Skattsins og veitir leiðsögn og tæknilega ráðgjöf til teyma og hagsmunaaðila. Deildin vinnur að fjölbreyttum og mikilvægum lausnum sem styðja við stafræna þjónustu, innri ferli og lögbundin verkefni Skattsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hönnun, þróun og viðhald hugbúnaðarlausna í kerfum Skattsins
Ábyrgð á tæknilegri útfærslu þróunar og nýrra eiginleika í samstarfi við vörueiganda og kjarnateymi
Ábyrgð á rekstri, vöktun og úrlausn tæknilegra vandamála í kerfum
Tæknileg ráðgjöf, samskipti og samstarf við innri og ytri hagaðila um tæknilegar útfærslur og er tæknilegur tengiliður fyrir tollateymi
Þátttaka í tæknilegri þróun og umbótum á núverandi kerfum og vinnubrögðum
Hæfniskröfur
Háskólamenntun (grunnnám) í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegu
A.m.k. þriggja ára reynsla af full stack forritun (t.d. .NET, React og/eða sambærilegt)
Reynsla af útgáfustýringu (Git) og CI/CD ferlum
Reynsla af Scrum/Agile
Þekking á gagnagrunnum (t.d. Oracle og/eða SQL server) er kostur
Reynsla af samþættingu milli kerfa er kostur
Góð samskiptahæfni, jákvætt viðhorf og frumkvæði
Hæfni til að vinna sjálfstætt og í þverfaglegum teymum
Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir. Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að 6 mánuði að loknum umsóknarfresti.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Skatturinn
Upplýsingar um starf
Starf
Hugbúnaðarsérfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.10.2026
Umsóknarfrestur
09.11.2026