Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjármála- og efnahags­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Hagfræðingur á skrifstofu kjara- og mannauðsmála

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.09.2026

Umsóknarfrestur

01.10.2026

Hagfræðingur á skrifstofu kjara- og mannauðsmála

Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að metnaðarfullum og úrræðagóðum hagfræðingi til starfa í öflugum hópi fagfólks á skrifstofu kjara- og mannauðsmála (SKM).

Skrifstofan sinnir fjölbreyttum verkefnum á sviði kjara-, vinnumarkaðs- og mannauðsmála og veitir m.a. stefnumarkandi ráðgjöf á sviði kjara- og mannauðsmála fyrir stofnanir ríkisins. Hlutverk SKM er að stuðla að framþróun í starfsumhverfi ríkisins með það að markmiði að efla skilvirkni, árangur og gæði opinberrar þjónustu. Innan SKM starfar öflugur hópur sérfræðinga með víðtæka reynslu af vinnumarkaðs-, mannauðs- og kjaramálum. Fram undan eru fjölbreytt og krefjandi verkefni á sviði kjaramála, vinnumarkaðsgreininga og stefnumótunar ríkisins í mannauðsmálum sem fela í sér spennandi tækifæri.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í stefnumótun og framþróun á sviði kjara-, vinnumarkaðs- og mannauðsmála.

  • Þátttaka í gerð, innleiðingu og eftirfylgni kjarasamninga fyrir hönd ríkisins.

  • Greining á launaþróun, kjaratölfræði og öðrum vinnumarkaðsgögnum sem styðja við faglega ákvarðanatöku.

  • Undirbúningur gagna og greininga fyrir samningsgerð og stefnumótun.

  • Samskipti við aðila innan stjórnsýslunnar, stéttarfélög og aðra hagsmunaaðila.

  • Þátttaka í nefndum, starfshópum og þróunarverkefnum.

Hæfniskröfur

  • Grunn- og meistarapróf á sviði hagfræði.

  • Víðtæk þekking og reynsla af kjaratölfræði, launa- og vinnumarkaðsgreiningum.

  • Færni í hagnýtingu gagna við stefnumótun og ákvarðanatöku.

  • Þekking og reynsla af vinnumarkaðsmálum.

  • Rík greiningarhæfni og reynsla af úrvinnslu og framsetningu upplýsinga á skýran og markvissan hátt.

  • Mjög góð samskiptafærni ásamt góðri reynslu af farsælli teymisvinnu.

  • Lausnamiðuð og gagnrýnin hugsun, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Reynsla af vinnu við undirbúning, gerð og eftirfylgni kjarasamninga, túlkun þeirra og framkvæmd er kostur.

  • Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.

  • Kunnátta í öðru norðurlandatungumáli er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.

Í boði er áhugavert starf á krefjandi og skemmtilegum vinnustað. Á skrifstofu kjara- og mannauðssmála starfa 11 sérfræðingar en í ráðuneytinu öllu tæplega 100 starfsmenn. Ráðuneytið hefur frumkvæði, fagmennsku og árangur að leiðarljósi í starfsemi sinni. Upplýsingar um starfsemi ráðuneytisins er að finna á Stjórnarráðið | Fjármála- og efnahagsráðuneytið.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu þessarar auglýsingar, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingu lausra starfa. Til greina kemur að ráða fleiri en einn aðila á grundvelli þessarar auglýsingar.

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Umsækjendum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmi, auk annarra þátta, heildstætt inn í hæfnimatið.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 01.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jökull Heiðdal Úlfsson

skrifstofustjóri

Tölvupóstur: jokull.ulfsson@fjr.is

Kristín Gunnarsdóttir

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: kristin.gunnarsdottir@fjr.is

Þjónustuaðili

Fjármála- og efnahags­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Hagfræðingur á skrifstofu kjara- og mannauðsmála

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.09.2026

Umsóknarfrestur

01.10.2026