
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Geislafræðingur - Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
40-100%
Starf skráð
09.11.2026
Umsóknarfrestur
23.11.2026
Geislafræðingur - Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð
Vegna nýrra verkefna og vaxandi starfsemi óskum við eftir metnaðarfullum geislafræðingi í okkar góða teymi á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð. Í boði er góð einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reynds starfsfólks og gott starfsumhverfi. Mjög góður starfsandi er ríkjandi og ótalmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi og styðja við umbætur í þjónustu við skjólstæðinga okkar. Unnið er í dagvinnu virka daga.
Á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð framkvæma geislafræðingar skimanir fyrir brjóstakrabbameini og klínískar myndgreiningar brjóstameina. Geislafræðingarnir ferðast einnig út um allt land og framkvæma þar brjóstaskimanir. Starfið er mjög fjölbreytt og mikil tækifæri fyrir geislafræðinga að taka þátt í þróun og uppbyggingu brjóstarannsókna.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf. Starfshlutfall og upphaf starfa er samkomulag.
Helstu verkefni og ábyrgð
Framkvæmd brjóstarannsókna
Sérhæfð verkefni eftir atvikum sem heyra undir starfsemi deildar
Virk þátttaka í gæða- og umbótastarfi
Skráning í upplýsingakerfi deildarinnar
Stuðla að góðri myndgreiningarþjónustu
Þátttaka í teymisvinnu á Brjóstamiðstöð
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi geislafræðings
Mjög góð samskiptahæfni og fagleg framkoma
Hæfni og geta til starfa í teymi
Virk þátttaka og áhugi á að byggja upp og stuðla að góðum starfsanda
Stundvísi, áreiðanleiki og jákvæðni
Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
Frumkvæði og skipulagsfærni
Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Geislafræðingur, teymisvinna
Tungumálahæfni: Íslenska 3/5, enska 3/5
Staðsetning: Eiríksgata 5, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 40-100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Geislafræðingur - Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
40-100%
Starf skráð
09.11.2026
Umsóknarfrestur
23.11.2026