
Þjónustuaðili
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
Upplýsingar um starf
Starf
Skjalastjóri
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
24.09.2026
Umsóknarfrestur
07.10.2026
Skjalastjóri
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn leitar að öflugum og metnaðarfullum skjalastjóra.
Skjalastjóri hefur umsjón með skjala- og gæðakerfi safnsins og þróun skjalastjórnunar á safninu og styður við innleiðingu og samræmingu verklags þvert á safnið. Skjalastjóri heyrir undir landsbókavörð og starfar þvert á svið safnsins í verkefnum sínum.Í boði er áhugavert og krefjandi starf, þar sem reynir á samskiptahæfni, frumkvæði og fagmennsku, í sveigjanlegu starfsumhverfi og tækifæri til að þróast og þroskast í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með þróun og nýtingu skjalavörslu- og gæðakerfis safnsins
Móttaka, skráning, varðveisla og miðlun skjala
Gerð og viðhald málalykils, skjalavistunar- og grisjunaráætlunar og afhending rafrænna gagna til langtímavarðveislu
Leiðir þróun og eftirfylgni með skjalastefnu og verklagi við skjalastjórn
Stýring og viðhald á gæðaskjölum
Ráðgjöf og fræðsla fyrir starfsfólk um skjalavörslu- og gæðakerfið
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Háskólapróf á sviði skjalastjórnunar eða sambærileg menntun sem nýtist i starfi
Þekking og reynsla á skjalavörslu og skjalastjórn
Þekking á skjala- og málakerfi OneSystems æskileg
Mjög góð tölvu- og tæknikunnátta
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Skipulagsfærni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
Þjónustulund, færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 7. október 2026. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisáætlun safnsins. Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn er þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla Íslands. Safnið er í forystu um öflun, varðveislu og miðlun upplýsinga og eflir þannig menningu, rannsóknir og nýsköpun.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn | Þjóðarbókhlöðunni | s. 525-5600 | www.landsbokasafn.is
Þekkingarveita í allra þágu
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.10.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
Upplýsingar um starf
Starf
Skjalastjóri
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
24.09.2026
Umsóknarfrestur
07.10.2026