Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafi á Austurlandi

Staðsetning

Vestfirðir

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

22.10.2026

Umsóknarfrestur

05.11.2026

Ráðgjafi á Austurlandi

Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða ráðgjafa á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Austurlandi.

Ráðgjafi þjónustar atvinnuleitendur og atvinnurekendur með það að markmiði að vinna gegn atvinnuleysi. Í starfi sínu þarf ráðgjafi að geta beitt fjölbreyttum aðferðum og myndað tengsl við ólíka aðila til að vinna að hagsmunum atvinnuleitenda og atvinnulífs.

Starfstöð ráðgjafa er á Egilsstöðum.

Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn ráðgjöf og vinnumiðlun.

  • Ráðgjöf við flóttamenn.

  • Ráðgjöf og vinnumiðlun við fólk með skerta starfsgetu.

  • Afgreiðsla og símavaktir.

  • Skráningar, upplýsingamiðlun og samskipti við fræðsluaðila.

  • Kynningar, starfsleitarfundir og umsjón með námskeiðum og virkniúrræðum.

  • Koma á og viðhalda tengslum við fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila.

  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi s.s. á sviði náms- og starfsráðgjafar, félagsráðgjafar, þroskaþjálfunar eða annarrar menntun á félags- eða heilbrigðissviði.

  • Reynsla af ráðgjöf er æskileg.

  • Góð þekking á íslensku samfélagi.

  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góðir skipulagshæfileikar.

  • Góð samskiptahæfni, þjónustulund og metnaður til að skila góðu starfi.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál sem nýtast í starfi eru kostur.

  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1. janúar 2027.

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 05.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Svava Júlía Jónsdóttir

Sviðsstjóri Þjónustusviðs

Tölvupóstur: svava.j.jonsdottir@vmst.is

Sími: 5154800

Þorleifur Kristinn Níelsson

Forstöðumaður

Tölvupóstur: thorleifur.kr.nielsson@vmst.is

Sími: 5154800

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafi á Austurlandi

Staðsetning

Vestfirðir

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

22.10.2026

Umsóknarfrestur

05.11.2026