
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í hagnýtri stærðfræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.10.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026
Lektor í hagnýtri stærðfræði
Laust er til umsóknar fullt starf lektors í hagnýtri stærðfræði við námsbraut í stærðfræði við Raunvísindadeild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands.
Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun.
Kennsla í grunnnámi fer almennt fram á íslensku. Miðað er við að viðkomandi geti kennt á íslensku eftir fimm ár í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla og þróun námskeiða í grunn- og framhaldsnámi í stærðfræði og hagnýtri stærðfræði
Rannsóknir í hagnýtri stærðfræði
Leiðsögn við lokaverkefni nemenda
Öflun rannsóknastyrkja
Þátttaka í stjórnun námsbrautar og seta í nefndum á vegum deildar, sviðs eða háskólans
Hæfniskröfur
Doktorspróf í stærðfræði, hagnýtri stærðfræði eða skyldum greinum
Reynsla af háskólakennslu
Rannsóknavirkni í hagnýtri stærðfræði á alþjóðavettvangi, sem kemur meðal annars fram í birtingum í alþjóðlegum tímaritum
Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er æskileg
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Áhersla er lögð á að sá sem starfið hlýtur búi yfir sterkum grunni í stærðfræði til að geta kennt námskeið á fjölbreyttum sviðum svo sem tölulegri greiningu, kennilegri tölfræði og almennum inngangsnámskeiðum í stærðfræði.
Við ráðningu verður horft til aðstæðna og þarfa námsbrautar í stærðfræði og Raunvísindadeildar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf sem fyrst eftir að þær nefndir sem um málið fjalla hafa lokið störfum.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009. Samkvæmt 38. gr. reglnanna er rektor heimilt að veita framgang í starf dósents eða prófessors við nýráðningu uppfylli viðkomandi þau skilyrði.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um þrjá mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í hagnýtri stærðfræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.10.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026