Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Menning­ar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráðu­neyti

Upplýsingar um starf

Starf

Safnstjóri Gljúfrasteins - hús skáldsins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.10.2026

Umsóknarfrestur

02.11.2026

Safnstjóri Gljúfrasteins - hús skáldsins

Safnstjóri annast daglega framkvæmd og stjórnun þeirra verkefna sem safninu er ætlað að sinna samkvæmt safnalögum og reglum um starfsemi safnsins. Auk þess ber safnstjóri ábyrgð á rekstri, þ.m.t. fjárreiðum og daglegri stjórnun safnsins. Hann ræður starfmenn þess og er í fyrirsvari fyrir safnið. Safnstjóri er ráðinn af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að höfðu samráði við stjórn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg og rekstrarleg forysta Gljúfrasteins.

  • Stefnumótun, skipulag og framkvæmd safnastarfs skv. safnalögum og reglum sem um safnið gilda.

  • Yfirumsjón með fjármálum safnsins og gerð fjárhags- og rekstraráætlana.

  • Stjórnsýsla og samskipti við ráðuneyti, stjórn safnsins, stjórnvöld og aðra opinbera aðila.

  • Samskipti við innlenda og erlenda aðila.

  • Frumkvæði að samstarfi og eftirfylgni verkefna á sviði sýninga, viðburða og varðveislu.

  • Móta framtíðarsýn fyrir starfsemina og stuðla að áframhaldandi þróun hennar ásamt því að miðla þekkingu og upplýsingum um lífsstarf Halldórs og Auðar Laxness.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

  • Staðgóð þekkingu á lífsstarfi Halldórs Laxness og starfssviði safnsins og skýr framtíðarsýn fyrir hönd þess.

  • Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri sem nýtist í starfi, þ.m.t. stefnumótun og áætlanagerð.

  • Leiðtogahæfni og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.

  • Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu sem nýtist á starfssviði er kostur.

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt framúrskarandi skipulagshæfni og þjónustulund.

  • Afar gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli. Haldgóð þekking á öðrum tungumálum er mikill kostur.

  • Reynsla af notkun samfélagsmiðla og árangursríkri miðlun upplýsinga.

  • Reynsla og hæfni í framkomu á opinberum vettvangi í miðlun þekkingar og upplýsinga.

Frekari upplýsingar um starfið

Um launakjör fer samkvæmt 39. gr. a laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Frekari upplýsingar um safnið

Gljúfrasteinn var heimili og vinnustaður Halldórs og Auðar Laxness og fjölskyldu um hálfrar aldar skeið. Íslenska ríkið keypti húsið og listaverkin árið 2002, þegar öld var liðin frá fæðingu skáldsins, og tveimur árum síðar var það opnað almenningi. Fjölskylda skáldsins gaf safninu allt innbú á Gljúfrasteini sem tilheyrði fjölskyldunni með sérstöku gjafabréfi.

Húsið er safn Halldórs Laxness þar sem heimili og vinnustaður hans eru látin haldast óbreytt. Stærstu vistarverurnar eru stór stofa á jarðhæð og skrifstofa Halldórs á annarri hæð. Þar er bókasafn hans varðveitt svo og vinnupúltið sem hann stóð gjarnan við.

Safnkostur Gljúfrasteins er skráður í menningarsögulega gagnagrunninn Sarp. Munir, listaverk og ljósmyndir eru skráðar í gagnagrunninn en bókasafn skáldsins er skráð í Gegni. Þá voru handrit, dagbækur, sendibréf og þau skjöl sem fylgdu með í gjöfinni skráð og eru varðveitt á Handritadeild Landsbókasafns Íslands. Á Gljúfrasteini er leitast við að safna öllu því er viðkemur ævi og verkum Halldórs Laxness.

Gljúfrasteinn er viðurkennt safn og starfar skv. safnalögum.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.Um 100% starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um kjör fer skv. launasamningi BHM við ríkið.

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Snorri Jónsson

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: snorri.jonsson@mnh.is

Sími: 5459600

Þjónustuaðili

Menning­ar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráðu­neyti

Upplýsingar um starf

Starf

Safnstjóri Gljúfrasteins - hús skáldsins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.10.2026

Umsóknarfrestur

02.11.2026