Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðardeildarstjóri á hjartarannsóknarstofu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

09.11.2026

Umsóknarfrestur

25.11.2026

Aðstoðardeildarstjóri á hjartarannsóknarstofu

Aðstoðardeildarstjóri óskast til starfa á fjölbreyttri deild hjartarannsókna.

Við leitum að geislafræðingi eða lífeindafræðingi sem hefur áhuga á stjórnun, faglegri þróun og umbótastarfi. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri samskiptahæfni, frumkvæði og sveigjanleika og hafa áhuga á teymisvinnu og þróun þjónustunnar. Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra að skipulagningu og þróun starfseminnar og innleiðingu nýjunga. Starfið felur einnig í sér þátttöku í verkefnum tengdum stjórnun, mannauði, þjónustu og gæðum.

Starfsemi hjartarannsóknarstofu er fjölbreytt og enginn dagur er eins. Þjónusta sem heyrir undir starfsemi hjatarannsóknar er m.a. gang- og bjargráðseftirlit (stað- og fjarvöktun), hjartalínurit, hjartaómun og holter. Skjólstæðingar hjartarannsóknar geta einnig verið inniliggjandi eða komið frá öðrum dag- og göngudeildum, bæði við Hringbraut og í Fossvogi. Þá vinnur starfsfólk deildarinnar náið með öðrum hjartatengdum deildum spítalans.

Á deildinni er mjög góður starfsandi, frábært samstarfsfólk og tækifæri til að þróa faglega sérþekkingu og fjölþætta færni.

Um er að ræða 80-100% starfshlutfall í dagvinnu og ráðið verður í starfið frá 1. janúar 2027 eða eftir samkomulagi.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Er leiðandi í klínísku starfi, framþróun og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu innan hjartarannsóknar

  • Virk þátttaka í teymisvinnu

  • Ber ábyrgð á starfsemi, mönnun og rekstri deildar í fjarveru og í samráði við deildarstjóra

  • Ber ábyrgð á daglegri skipulagningu og framkvæmd þjónustu í samráði við deildarstjóra

  • Ber ábyrgð á öðrum verkefnum sem deildarstjóri felur honum

  • Stuðlar að hvetjandi og jákvæðu starfsumhverfi og stöðugri liðsheild

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi geislafræðings eða lífeindafræðings

  • Viðbótarmenntun og /eða fagleg reynsla sem nýtist í starfi er kostur

  • Áhugi og reynsla af þverfaglegu samstarfi, teymisvinnu og umbótastarfi

  • Jákvætt viðmót og mjög góð hæfni í samskiptum

  • Reynsla af stjórnun og/ eða forystu er kostur

  • Skipulögð, vönduð og öguð vinnubrögð

  • Mikil aðlögunarfærni og geta til að starfa í fjölbreyttu umhverfi

  • Frumkvæði og sjálfstæði

  • Mjög góð kunnátta í íslensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, geislafræðingur, lífeindafræðingur, teymisvinna, stjórnunarstarf, deildarstjóri

Tungumálahæfni: íslenska 3/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 25.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Birgir Magnússon

deildarstjóri

Tölvupóstur: birgirma@landspitali.is

Sími: 847-0053

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðardeildarstjóri á hjartarannsóknarstofu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

09.11.2026

Umsóknarfrestur

25.11.2026