Þjónustuaðili
Ríkislögreglustjóri
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.09.2026
Umsóknarfrestur
23.09.2026
Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra
Embætti ríkislögreglustjóra leitar að öflugum leiðtoga til að stýra almannavarnadeild embættisins.
Við leitum að einstaklingi sem býr yfir framúrskarandi leiðtogahæfni, víðtækri þekkingu og reynslu af almannavörnum og hefur metnað til að leiða mikilvægt fag- og þróunarstarf á sviði almannavarna. Deildarstjóri gegnir lykilhlutverki í daglegri stjórnun almannavarnadeildar, þróun almannavarnastarfs og samhæfingu verkefna með fjölbreyttum innlendum- og erlendum samstarfsaðilum.
Gert er ráð fyrir því að setja í stöðuna til reynslu í 6 mánuði frá og með 1. október 2026 með skipun í huga að loknu reynslutímabili. Um er að ræða 100% stöðu. Næsti yfirmaður deildarstjóra almannavarnardeildar er yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar.
Um almannavarnadeild
Almannavarnadeild er ein deilda embættis ríkislögreglustjóra sem fer með málefni almannavarna í umboði dómsmálaráðherra. Deildin hefur mikilvægu hlutverki að gegna í uppbyggingu og þróun almannavarnakerfisins og sinnir verkefnum á sviði fyrirbyggjandi aðgerða, samhæfingar aðgerða og endurreisnar.
Meðal lögbundinna verkefna deildarinnar eru verkefni á sviði áfallaþols og áhættustýringar, samhæfingarstöðvar almannavarna, stuðningur og eftirlit með vinnu við áhættugreiningu og rekstur þjónustumiðstöðvar í kjölfar hamfara.
Starf deildarinnar er fjölbreytt og verkefnin geta verið bæði fyrirséð og ófyrirséð. Því er lögð rík áhersla á fagþekkingu á almannavörnum, uppbyggingu almannavarna og opinberrar stjórnsýslu, auk sjálfstæðra og faglegra vinnubragða, sveigjanleika og öflugrar samskiptahæfni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita faglega forystu og bera ábyrgð á daglegri stjórnun, skipulagi og þróun almannavarnadeildar.
Hafa yfirsýn yfir verkefni deildarinnar og tryggja eftirfylgni með verkefnum og ábyrgð starfsfólks.
Framfylgja stefnu embættisins og markmiðum almannavarnadeildar.
Ábyrgð á rekstri og fjármálum deildarinnar og tryggja skilvirka nýtingu fjármuna.
Leiða og styðja starfsfólk með áherslu á góðan starfsanda, faglega þróun og árangur.
Veita ráðgjöf, upplýsingagjöf og stuðning til hagaðila
Byggja upp og viðhalda öflugu samstarfi við hagaðila, stjórnvöld, stofnanir, sveitarfélög og aðra samstarfsaðila á sviði almannavarna.
Taka þátt í þróun stefnumótunar og framþróun starfsemi almannavarnadeildar.
Stuðla að samræmdum og skilvirkum vinnubrögðum innan deildarinnar.
Taka þátt í fræðslu, fyrirlestrum og kynningu á hlutverki almannavarnadeildar.
Sinna öðrum verkefnum sem yfirlögregluþjónn eða ríkislögreglustjóri fela deildinni eða deildarstjóra.
Hæfniskröfur
Menntun og reynsla
Próf frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómapróf í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 ECTS stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar er skilyrði.
Farsæl stjórnunarreynsla sem nýtist í starfi er skilyrði.
Þekking og reynsla af almannavörnum og öryggismálum eru skilyrði.
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er skilyrði.
Reynsla af samskiptum og samstarfi við fjölbreytta hagaðila er skilyrði.
Reynsla af því að vinna undir álagi og leiða umbótastarf er kostur.
Reynsla af gerð rekstrar- og verkefnaáætlana er kostur.
Reynsla af stefnumótun og breytingastjórn er kostur.
Þekking og reynsla af nýsköpun og stafrænni þróun er kostur.
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði.
Persónubundnir þættir
Leiðtogahæfni og geta til að hvetja og styðja starfsfólk sem og aðra til árangurs.
Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að byggja upp traust og árangursríkt samstarf.
Yfirsýn, skipulagshæfni og geta til að forgangsraða verkefnum í krefjandi og síbreytilegu starfsumhverfi.
Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og rík ábyrgðartilfinning.
Sveigjanleiki og geta til að bregðast faglega, hratt og markvisst við ófyrirséðum verkefnum.
Aðlögunarhæfni, geta starfað og tekið góðar ákvarðanir undir álagi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Embætti ríkislögreglustjóra er lifandi þekkingarvinnustaður sem býr að framúrskarandi mannauði sem sinna fjölbreyttum og samfélagslega mikilvægum verkefnum. Lögð er áhersla á opin og jákvæð samskipti, markvissa starfsþróun og samræmingu vinnu og fjölskyldulífs. Embætti ríkislögreglustjóra hefur hlotið jafnlaunavottun.
Stefna embættis ríkislögreglustjóra:
Tilgangur: Að vernda og virðaSýn: Að vinna að öruggara samfélagiMarkmið: Að vera þjónustudrifin, framsækin og upplýsandiÁherslur: Þjónusta, fagmennska, mannauður, tækni, reksturs
Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2026. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Áskilinn er réttur til að hafna öllum umsóknum.
Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í auglýsingu. Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum Starfatorg. Umsækjendum um störf hjá embætti ríkislögreglustjóra kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Vakin er athygli á því að samkvæmt 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu. Með vísan til 24. gr. varnarmálalaga nr. 34/2008 og 20. gr. reglugerðar nr. 959/2012, sbr. einnig 30. og 31. gr. reglugerðarinnar þarf starfsmaður að standast bakgrunnskoðun til að hljóta öryggisvottun vegna starfans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Ríkislögreglustjóri
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.09.2026
Umsóknarfrestur
23.09.2026