Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Félagsráðgjafi - Geðheilsumiðstöð barna - tímabundið starf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.10.2026

Umsóknarfrestur

20.10.2026

Félagsráðgjafi - Geðheilsumiðstöð barna - tímabundið starf

Hefur þú áhuga á að taka þátt í starfi með börnum og unglingum með geð- og taugaþroskaraskanir?

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að félagsráðgjafa til starfa í greiningarteymi hjá Geðheilsumiðstöð barna. Starfað er í þverfaglegu teymi við ráðgjöf og greiningu barna með geð- og taugaþroskaraskanir.

Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og taugaþroskaraskana barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.

Um er að ræða 100% tímabundið starf í eitt ár og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar nk. eða sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

Félagsráðgjafi starfar í þverfaglegu teymi við meðferð og ráðgjöf vegna barna með geð- eða taugaþroskaröskun. Félagsráðgjafi tekur virkan þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu. Félagsráðgjafi hefur enn fremur það hlutverk að veita foreldrum stuðning varðandi félagsleg réttindi og úrræði og eiga samskipti við aðra þjónustuaðila innan félags-, velferðar- og skólakerfis.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi í félagsráðgjöf gefið út af embætti landlæknis

  • Þekking og reynsla af vinnu með börnum og fjölskyldum þeirra

  • Þekking á geð og taugaþroskaröskunum barna og unglinga

  • Þekking og reynsla af þjónustukerfum sem sinna börnum og fjölskyldum þeirra, t.d. er þekking á félagsþjónustu sveitarfélaga mikill kostur.

  • Faglegur metnaður, sjálfstæði í starfi, frumkvæði og öguð vinnubrögð

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi

  • Góð íslenskukunnátta

  • Góð almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram afrit af leyfisbréfi og prófskírteinum ásamt hreinu sakavottorði. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.

Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Linda Kristmundsdóttir

Tölvupóstur: Linda.Kristmundsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-6620

Silja Björk Egilsdóttir

Tölvupóstur: silja.bjork.egilsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-6628

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Félagsráðgjafi - Geðheilsumiðstöð barna - tímabundið starf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.10.2026

Umsóknarfrestur

20.10.2026