Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Iðjuþjálfi - Egilsstaðir - Endurhæfingardeild - Afleysing
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
70%
Starf skráð
01.09.2026
Umsóknarfrestur
14.09.2026
Iðjuþjálfi - Egilsstaðir - Endurhæfingardeild - Afleysing
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða iðjuþjálfa í afleysingu frá 1. október 2026 - 31. ágúst 2027 við Endurhæfingardeild HSA á Egilsstöðum. Starfið er fjölbreytt og sveigjanlegt. Um er að ræða 70% starfshlutfall eða skv. nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn iðjuþjálfastörf fyrir einstaklinga og hópa. Fagleg ábyrgð hvað varðar undirbúning, framkvæmd og skráningu íhlutunar. Nýtir viðeigandi matstæki, gerir færnimat og skipuleggur íhlutunaráætlanir fyrir skjólstæðinga á ólíkum aldri og miðlar nauðsynlegum upplýsingum til annarra. Stuðlar að og viðheldur sjálfstæði skjólstæðinga og eflir þá til sjálfshjálpar.
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 70%
Umsóknarfrestur er til og með 14.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir Rafn Reynisson
Tölvupóstur: sverrir.r.reynisson@hsa.is
Magnfríður Ólöf Pétursdóttir
Tölvupóstur: magnfridur.o.petursdottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Iðjuþjálfi - Egilsstaðir - Endurhæfingardeild - Afleysing
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
70%
Starf skráð
01.09.2026
Umsóknarfrestur
14.09.2026