
Þjónustuaðili
FVA
Upplýsingar um starf
Starf
Sérkennari, afleysing
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.11.2026
Umsóknarfrestur
12.11.2026
Sérkennari, afleysing
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi auglýsir eftir sérkennara til afleysingar í eina önn, vorönn 2027.
Starfið felst í einstaklingsmiðaðri kennslu og stuðningi við nemendur á starfsbraut skólans, með áherslu á að efla færni þeirra, sjálfstæði og þátttöku í námi og samfélagi.
FVA er framsækinn og traustur framhaldsskóli á Akranesi. Skólinn starfar samkvæmt þremur gildum; jafnrétti, virðingu og fjölbreytileika. Nemendur eru um 500 og starfsfólk skólans 70. Við skólann er starfrækt öflug starfsbraut með nemendum sem þurfa sérstök úrræði vegna námserfiðleika, félagslegra aðstæðna, fötlunar eða þroskafrávika.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulagning og framkvæmd einstaklingsmiðaðrar kennslu
Gerð einstaklingsnámskráa, námsáætlana og námsgagna eftir þörfum
Mat á námsstöðu nemenda, málþroska og lestrarerfiðleikum
Aðlögun kennsluhátta og námsefnis að fjölbreyttum þörfum nemenda
Þátttaka í teymisvinnu og samstarfi við kennara, annað starfsfólk og aðstandendur nemenda
Hæfniskröfur
Sérkennaramenntun og leyfisbréf til kennslu
Fagleg þekking, færni og áhugi á kennslu nemenda með fjölbreyttar stuðningsþarfir
Mjög góð samskiptahæfni, samstarfshæfni og sveigjanleiki
Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi
Góð íslenskukunnátta, bæði í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Kynningarbréf þar sem fram kemur hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur starfsins
Ferilskrá
Afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi
Upplýsingar um umsagnaraðila sem hafa má samband við
Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað.
Við ráðningu er tekið er mið af jafnréttisáætlun FVA.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
FVA
Upplýsingar um starf
Starf
Sérkennari, afleysing
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.11.2026
Umsóknarfrestur
12.11.2026