Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Náttúru­vernd­ar­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Viltu leiða náttúruvernd á Norðurlandi?

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.11.2026

Umsóknarfrestur

23.11.2026

Viltu leiða náttúruvernd á Norðurlandi?

Umdæmisstjóri og þjóðgarðsvörður

Náttúruverndarstofnun leitar að öflugum leiðtoga í starf umdæmisstjóra náttúruverndarsvæða á Norðurlandi og þjóðgarðsvarðar á norðurhálendi Vatnajökulsþjóðgarðs.Í umdæminu eru nokkrar af stórbrotnustu náttúruperlum landsins, meðal annars Askja og Herðubreiðarlindir í Vatnajökulsþjóðgarði ásamt Mývatni, Laxá og Goðafossi og önnur friðlýst svæði á Norðurlandi.Umdæmisstjóri/þjóðgarðsvörður ber ábyrgð á daglegum rekstri umdæmisins, rekstri gestastofu á Gíg, stýringu starfsfólks, stefnumótun og þróun svæðanna. Meginmarkmið starfssins er að tryggja verndargildi svæðanna til framtíðar samhliða því að stuðla að góðri upplifun gesta.Starfið felur í sér víðtækt samstarf við starfsfólk stofnunarinnar, sveitarfélög, nærsamfélag og aðra hagaðila. Umdæmisstjóri/þjóðgarðsvörður er hluti af stjórnendateymi Náttúruverndarstofnunar og vinnur náið með öðrum umdæmisstjórum að sameiginlegum markmiðum stofnunarinnar.Við leitum að einstaklingi með leiðtogahæfni, frumkvæði og metnað til að þróa starfsemina og efla samstarf. Um er að ræða fjölbreytt, sjálfstætt og krefjandi stjórnunarstarf þar sem tækifæri gefst til að láta gott af sér leiða í þágu náttúruverndar.Starfsstöð er í Gíg á Skútustöðum í Mývatnssveit.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Forysta og ábyrgð á starfsemi og rekstri umdæmisins, þar með talið norðurhálendi Vatnajökulsþjóðgarðs

  • Stjórnun starfsfólks, mannauðsmál og uppbygging öflugs teymis

  • Fjárhagsáætlunargerð, rekstrarstýring og eftirfylgni

  • Stefnumótun og þróun friðlýstra svæða með áherslu á náttúruvernd

  • Ábyrgð á uppbyggingu og viðhaldi innviða á áfangastöðum

  • Samstarf við sveitarfélög, nærsamfélag og aðra hagaðila

  • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi og þróun starfsemi Náttúruverndarstofnunar

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfsfærni

  • Leiðtogahæfileikar

  • Reynsla af stjórnun og rekstri æskileg

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi

  • Áhugi og þekking á náttúruvernd og umhverfismálum

  • Þekking á viðkomandi landssvæði er kostur

  • Þekking á starfsemi friðlýstra svæða er kostur

  • Þekking á stjórnsýslu er kostur

  • Gott vald á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir hæfni sinni og áhuga á starfinu. Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Um NáttúruverndarstofnunNáttúruverndarstofnun hefur víðtækt hlutverk í náttúruvernd, sjálfbærri þróun og vernd friðlýstra svæða, ásamt umsjón með villtum dýrum og veiðistjórnun. Markmið stofnunarinnar er að tryggja að náttúra Íslands njóti verndar til framtíðar. Hjá Náttúruverndarstofnun starfar samheldinn hópur fólks með fjölbreytta menntun og reynslu sem vinnur að sameiginlegu markmiði um vernd og ábyrga nýtingu náttúru Íslands. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru 16 talsins víðs vegar um landið.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Inga Dóra Hrólfsdóttir

Tölvupóstur: inga.dora.hrolfsdottir@nattura.is

Margrét Jóna Ísólfsdóttir

Tölvupóstur: margret.jona.isolfsdottir@nattura.is

Þjónustuaðili

Náttúru­vernd­ar­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Viltu leiða náttúruvernd á Norðurlandi?

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.11.2026

Umsóknarfrestur

23.11.2026