
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Háskólamenntaður starfsmaður á erfða- og sameindalæknisfræðideild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
16.09.2026
Umsóknarfrestur
28.09.2026
Háskólamenntaður starfsmaður á erfða- og sameindalæknisfræðideild
Við leitum eftir jákvæðum, sjálfstæðum og metnaðarfullum einstaklingi til starfa á erfða- og sameindalæknisfræðideild (ESD) Landspítala.
Á deildinni starfa um 50 manns í öflugu þverfaglegu teymi. ESD veitir alhliða erfðaheilbrigðisþjónustu og er eina deild sinnar tegundar á Íslandi. Deildin heyrir undir rannsóknarþjónustu og sinnir greiningum, vísindarannsóknum, ráðgjöf og kennslu heilbrigðisstétta í faginu.
Vinnuandinn einkennist af samvinnu, lipurð, stuðningi og metnaði. Vinnutími er frá kl. 8-16, virka daga og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir sem styður við betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þjónusturannsóknir: Sameindaerfðafræðirannsóknir og önnur verkefni tengd starfsemi deildarinnar
Gæðamál: Skil á svörum samkvæmt stöðluðum aðferðalýsingum og þátttaka í innleiðingu gæðakerfis. Að stuðla að faglegu starfi, gæðum og framförum í rannsóknum innan deildarinnar
Gagnavinnsla: Skráning, utanumhald og úrvinnsla upplýsinga sem tengjast lífssýnum og rannsóknaniðurstöðum
Hæfniskröfur
Háskólapróf í náttúrufræði, lífeindafræði, lífefnafræði, líffræði eða sambærilegum greinum
Íslenskt starfsleyfi náttúrufræðings eða lífeindafræðings í heilbrigðisþjónustu æskilegt
Sérmenntun og/ eða starfsreynsla á sviði erfðarannsókna æskileg
Reynsla af vinnu við klínískar rannsóknir í erfðafræði æskileg
Reynsla af notkun GLIMS rannsóknarstofukerfis er kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í mæltu og rituðu máli
Góð almenn tölvukunnátta
Góð skipulagshæfni, frumkvæði og öguð vinnubrögð
Hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í teymi
Jákvætt viðmót, lipurð í samskiptum og fagleg framkoma
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta.Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, náttúrufræðingur, lífeindafræðingur, rannsóknir, heilbrigðisvísindi
Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Eiríkur Briem
Tölvupóstur: eirikubr@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Háskólamenntaður starfsmaður á erfða- og sameindalæknisfræðideild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
16.09.2026
Umsóknarfrestur
28.09.2026