
Þjónustuaðili
Alþingi
Upplýsingar um starf
Starf
Liðsauki í veitingadeild á skrifstofu Alþingis
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.10.2026
Umsóknarfrestur
09.11.2026
Liðsauki í veitingadeild á skrifstofu Alþingis
Laus er staða fyrir jákvæðan og þjónustulipran einstakling í starf í veitingadeild. Hjá okkur er líf og fjör og verkefnin eru fjölbreytt. Deildin annast alla veitingaþjónustu á starfssvæði þingsins, þ.m.t. rekstur mötuneytis, veitingar á nefndarfundum og viðburðum á vegum þingsins. Við bjóðum upp á fjölbreyttan og hollan mat úr fersku og góðu hráefni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Matseld, bakstur og annar matarundirbúningur
Veitingaþjónusta á fundum og öðrum viðburðum
Uppþvottur og þrif
Önnur verkefni veitingadeildar
Hæfniskröfur
Iðnmenntun í matvælagrein sem nýtist í starfi
Marktæk reynsla af sambærilegu starfi, svo sem í mötuneyti
Ástríða og góð kunnátta í matargerð og bakstri
Lipurð í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Snyrtimennska og stundvísi
Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem forseti Alþingis og Félag starfsmanna Alþingis hafa gert.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið í ráðningarkerfi Orra. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni til að gegna starfinu. Einnig skal leggja fram staðfestingu á prófgráðum og upplýsingum um umsagnaraðila. Starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um.
Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Gildi skrifstofunnar eru fagmennska, virðing og framsækni. Nánari upplýsingar um starfsemi Alþingis og skrifstofu þingsins er að finna á vef Alþingis.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Alþingi
Upplýsingar um starf
Starf
Liðsauki í veitingadeild á skrifstofu Alþingis
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.10.2026
Umsóknarfrestur
09.11.2026