
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Móttökuritari - Heilsugæslan Efra Breiðholti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
11.09.2026
Umsóknarfrestur
24.09.2026
Móttökuritari - Heilsugæslan Efra Breiðholti
Heilsugæslan Efra-Breiðholti leitar að skemmtilegum og jákvæðum einstaklingi í starf móttökuritara. Starfið er fjölbreytt og unnið í lifandi umhverfi þar sem góð samskiptahæfni, þjónustulund og jákvætt viðmót skipta miklu máli. Ef þú hefur gaman af samskiptum við fólk og metnað til að veita framúrskarandi þjónustu viljum við gjarnan fá að hitta þig.
Um er að ræða 50% tímabundið starf til eins árs. Vinnutíminn er að mestu fyrir hádegi og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Heilsugæslan Efra Breiðholti þjónar fyrst og fremst íbúum Efra-Breiðholts en öllum er frjálst að skrá sig á stöðina. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef heilsugæslunnar https://island.is/s/hh
Helstu verkefni og ábyrgð
Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinna
Tekur á móti skilaboðum og kemur þeim til réttra aðila.
Sinnir tímabókunum í viðtöl hjá læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki.
Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun og frágangi gagna
Sér um að opna heilsugæslustöð að morgni þegar þess þarf
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Nám sem nýtist í starfi
Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Jákvæðni og rík þjónustulund
Reynsla af móttökuritarastarfi æskileg
Reynsla af Sögukerfi kostur
Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg
Íslenskukunnátta skilyrði
Góð almenn enskukunnátta æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 24.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Ásta Huld Hreinsdóttir
Tölvupóstur: asta.huld.idunnardottir@heilsugaeslan.is
Vildís Bergþórsdóttir
Tölvupóstur: vildis.bergthorsdottir@heilsugaeslan.is

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Móttökuritari - Heilsugæslan Efra Breiðholti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
11.09.2026
Umsóknarfrestur
24.09.2026