Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Lífeindafræðingur á rannsóknadeild Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
09.11.2026
Umsóknarfrestur
23.11.2026
Lífeindafræðingur á rannsóknadeild Sjúkrahússins á Akureyri
Ertu góður liðsmaður og langar þig að starfa í fjölbreyttu og hvetjandi starfsumhverfi?
Laus er til umsóknar staða lífeindafræðings á rannsóknadeild Sjúkrahússins á Akureyri.Starfshlutfall er 80-100% í dagvinnu auk bakvaktaskyldu.Um er að ræða ótímabundna stöðu sem er laus nú þegar eða eftir nánar samkomulagi.
Næsti yfirmaður er Inga Stella Pétursdóttir deildarstjóri rannsóknadeildar
Rannsóknadeildin sinnir þjónustu við Sjúkrahúsið á Akureyri ásamt öðrum heilbrigðisstofnunum á Norðausturlandi. Nú stendur yfir vinna við faggildingu deildarinnar sem stefnt er á að ljúka árið 2027.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn störf lífeindafræðinga á sviði klínískrar lífefnafræði, blóðmeinafræði, sýkla- & veirufræði og í blóðbanka
Gætir að öryggi allra upplýsinga og fylgir öryggisstefnu
Ber ábyrgð á þeim rannsóknum sem hann framkvæmir og svarar
Hæfniskröfur
Próf í lífeindafræði og gilt íslenskt starfsleyfi
Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag lífeindafræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til þess að sækja um starfið. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Lífeindafræðingur á rannsóknadeild Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
09.11.2026
Umsóknarfrestur
23.11.2026