Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

13.10.2026

Umsóknarfrestur

23.10.2026

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma

Vilt þú starfa í sérhæfðu og framsæknu starfsumhverfi?

Dagdeild gigtarsjúkdóma leitar að hjúkrunarfræðingi til starfa á innrennsliseiningu deildarinnar. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf þar sem veitt er sérhæfð meðferð með nýjustu líftæknilyfjum og mótefnameðferðum fyrir einstaklinga með gigtar-, lungna-, tauga-, ónæmis- og nýrnasjúkdóma.

Á deildinni starfar þverfaglegt teymi hjúkrunarfræðinga, lækna, sjúkraliða og ritara sem vinnur saman að því markmiði að veita framúrskarandi og örugga þjónustu. Vinnuumhverfið einkennist af fagmennsku, samvinnu, metnaði og góðum starfsanda.

Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á sérhæfðri meðferð og nýjungum í heilbrigðisþjónustu, sýnir frumkvæði og ábyrgð í starfi og nýtur þess að vinna í teymi. Starfið býður upp á einstakt tækifæri til að kynnast þeim framförum sem orðið hafa í meðferð langvinnra sjúkdóma með tilkomu líftæknilyfja og jákvæðum áhrifum þeirra á lífsgæði sjúklinga.

Deildin er staðsett í nýuppgerðu og nútímalegu húsnæði á Eiríksstöðum við Eiríksgötu 5. Þar starfar öflugt heilbrigðisstarfsfólks sem byggir starf sitt á gagnreyndri þekkingu, gæðum og stöðugri þróun þjónustunnar.

Við leggjum ríka áherslu á vandaða móttöku og markvissa aðlögun nýrra starfsmanna undir handleiðslu reyndra hjúkrunarfræðinga.

Starfshlutfall og upphaf starfa eru samkvæmt samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Við hvetjum hjúkrunarfræðinga með áhuga á sérhæfðri meðferð og þverfaglegu samstarfi til að sækja um og verða hluti af samhentu og metnaðarfullu teymi sem vinnur að því að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Áhugavert og krefjandi starf á sérhæfðri dagdeild

  • Öflugt og styðjandi starfsumhverfi

  • Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar

  • Vandaða aðlögun og stuðning frá reyndum samstarfsmönnum

  • Virka þátttöku í þróun þjónustu sem hefur raunveruleg áhrif á lífsgæði sjúklinga

Hæfniskröfur

  • Gilt íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni

  • Jákvætt viðhorf, fagmennska og sterk þjónustulund

  • Sjálfstæð, skipulögð og nákvæm vinnubrögð

  • Hæfni til að starfa í hröðu og fjölbreyttu umhverfi

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Eiríksgata 5, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Erna Jóna Sigmundsdóttir

Tölvupóstur: ernajs@landspitali.is

Sími: 666-1101

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

13.10.2026

Umsóknarfrestur

23.10.2026