Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingar á nýja skammtímadeild á Hlévangi í Reykjanesbæ
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
30.07.2026
Umsóknarfrestur
14.08.2026
Hjúkrunarfræðingar á nýja skammtímadeild á Hlévangi í Reykjanesbæ
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa á Hlévangi í Reykjanesbæ.
Hlévangur er ný deild innan HSS sem áætlað er að opni á seinni hluta árs 2026. Deildin verður 24 rýma skammtímadeild fyrir einstaklinga sem hafa ekki heilsu til að búa heima í sjálfstæðri búsetu.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í þróun í heilbrigðisþjónustu við aldraða. Um er að ræða einstakt tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.
Um er að ræða vaktavinnu. Störfin eru laus frá 1. október 2026 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn hjúkrun og vaktstjórn
Ábyrgð á hjúkrun á deild
Skipulagning hjúkrunarmeðferðar
Samskipti, hvatning og stuðningur við skjólstæðinga og aðstandendur
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Reynsla og áhugi á þjónustu við aldraða
Faglegur metnaður og leiðtogahæfni
Góð samskiptahæfni
Sjálfstæði í og frumkvæði í starfi
Gott vald á íslensku bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði.
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingar á nýja skammtímadeild á Hlévangi í Reykjanesbæ
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
30.07.2026
Umsóknarfrestur
14.08.2026