
Þjónustuaðili
Hafrannsóknastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Líffræðingur - Rannsóknastarf í Hafnarfirði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-80%
Starf skráð
21.08.2026
Umsóknarfrestur
31.08.2026
Líffræðingur - Rannsóknastarf í Hafnarfirði
Hafrannsóknastofnun óskar eftir að ráða aðila í tímabundið hlutastarf við rannsóknir sýna og gagnavinnslu í starfsstöð stofnunarinnar í Hafnarfirði. Starfið felst í fjölbreyttri vinnu við öflun og úrvinnslu gagna í landi og í rannsóknaleiðöngrum á sjó.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í sýnatöku úr lönduðum afla nytjastofna.
Þátttaka í rannsóknaleiðöngrum á sjó.
Úrvinnsla sýna.
Aldursgreiningar.
Stafræn myndun kvarna og myndvinnsla.
Samskipti við útgerðir og sjómenn.
Önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur
B.S. í líffræði, skilyrði.
Reynsla af aldursgreiningum, skilyrði.
Reynsla af rannsóknavinnu, skilyrði.
Lausnamiðun nálgun, tæknilegfærni og reynsla af myndvinnslu, skilyrði.
Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar.
Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi.
Góð íslenska og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Umsókninni skal fylgja:
Ítarleg ferilskrá - hámark 2. bls
Afrit af prófskírteinum (doktorspróf og/eða annað)
Kynningarbréf þar sem fram kemur bakgrunnur umsækjenda og ástæða þess að sótt er um starfið.
Nöfn tveggja meðmælenda ásamt samskiptaupplýsingum þeirra
Athugið:
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina.
Hafrannsóknarstofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Við ráðningu í störf við Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu Hafrannsóknastofnunar.
Sótt er um í gegnum starfatorg og er öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir
Um stofnunina
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Atvinnuvegaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki um sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Starfsemin felst einkum í fjölbreyttum rannsóknum og ráðgjafastarfi sem oft felur í sér innlent og alþjóðlegt samstarf við háskóla eða aðrar rannsóknastofnanir.. Stofnunin rekur auk höfuðstöðvar í Hafnarfirði starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð og tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 200 manns í fjölbreyttum störfum.
Gildi Hafrannsóknastofnunar eru: Þekking - Samvinna - Þor
Starfshlutfall er 70-80%
Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Guðrún Lúðvíksdóttir
Tölvupóstur: kristin.g.ludviksdottir@hafogvatn.is

Þjónustuaðili
Hafrannsóknastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Líffræðingur - Rannsóknastarf í Hafnarfirði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-80%
Starf skráð
21.08.2026
Umsóknarfrestur
31.08.2026