Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjármála- og efnahags­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í reikningsskilum og fjármálum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.10.2026

Umsóknarfrestur

10.11.2026

Sérfræðingur í reikningsskilum og fjármálum

Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að framúrskarandi sérfræðingi til að taka þátt í að móta og þróa reikningsskil ríkisins og stuðla að áframhaldandi framþróun í fjármálastjórn hins opinbera.

Framundan er mótun og innleiðing nýrra áherslna í eftirliti með opinberum fjármálum. Starfið felur í sér spennandi tækifæri til að bæta stýringu ríkisfjármála og stuðla að umbótum, auknum árangri og hagkvæmni í starfsemi ríkisins.

Í boði er áhugavert starf á krefjandi og skemmtilegum vinnustað. Starfið tilheyrir skrifstofu stjórnunar og umbóta sem sinnir fjárstýringu og rekstrarmálefnum ríkisins, lánamálum, umbótastarfi, eigna- og framkvæmdamálum og stefnumörkun í upplýsingatæknimálum ríkisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun og ráðgjöf varðandi reikningsskil ríkisins.

  • Gerð greinargerða um afkomu ríkissjóðs.

  • Þróun rekstraráætlana.

  • Samskipti við Fjársýslu ríkisins, m.a. varðandi gerð ríkisreiknings.

  • Samstarf við aðrar skrifstofur, ráðuneyti og stofnanir.

  • Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi á starfssviði ráðuneytisins.

  • Margvísleg tímabundin verkefni varðandi fjármál ríkisins.

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða sem nýtist í starfi, t.d. á sviði viðskiptafræði, reikningsskila og endurskoðunar eða fjármála. Löggilding í endurskoðun er kostur.

  • Góð reynsla á sviði reikningsskila og endurskoðunar auk þekkingar á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.

  • Þekking og reynsla af stefnumótun og þróunar- og breytingaverkefnum.

  • Reynsla af fjármálastjórn og áætlanagerð er kostur.

  • Greiningarhæfni og fagleg dómgreind við mat á upplýsingum og valkostum ásamt hæfni til að rökstyðja og miðla niðurstöðum með skýrum hætti.

  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni og geta til að byggja upp traust í samstarfi.

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti. Vald á einu Norðurlandamáli er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. Til greina kemur að ráða fleiri en einn aðila á grundvelli þessarar auglýsingar.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jón Gunnar Vilhelmsson

skrifstofustjóri

Tölvupóstur: jon.vilhelmsson@fjr.is

Kristín Gunnarsdóttir

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: kristin.gunnarsdottir@fjr.is

Þjónustuaðili

Fjármála- og efnahags­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í reikningsskilum og fjármálum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.10.2026

Umsóknarfrestur

10.11.2026