Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Klínískur næringarfræðingur við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
15.10.2026
Umsóknarfrestur
26.10.2026
Klínískur næringarfræðingur við Sjúkrahúsið á Akureyri
Laus er til umsóknar 60-100% tímabundin staða næringarfræðings við Sjúkrahúsið á Akureyri.
Staðan er laus frá 1. des eða eftir samkomulagi og er til eins árs með möguleika á framlengingu.
Mikil jákvæð þróun er á starfsumhverfi næringarfræðinga við sjúkrahúsið, sem býður upp á þverfræðilega samvinnu og tækifæri til þróunar á sérsviði ásamt mikils fjölbreytileika í starfi. Næringateymi SAk samanstendur af tveimur klínískum næringafræðingum og hjúkrunarfræðing
Næsti yfirmaður er Þórdís Rósa Sigurðardóttir deildarstjóri göngudeildar lyflækninga.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veitir skjólstæðingum næringarmeðferð eftir gagnreyndum og viðurkenndum aðferðum og ber faglega ábyrgð á starfssviði sínu í samræmi við siðareglur næringarfræðinga
Situr í næringaráði SAk og vinnur að stefnumótun um næringu fyrir sjúklinga og næringartengd málefni innan sjúkrahússins
Veitir næringarráðgjöf/næringarmeðferð til einstaklinga eftir tilvísun á dag- og göngudeildum eða legudeildum
Veitir starfsmönnum klínískra deilda leiðsögn og vinnur með starfsfólki eldhúss
Tekur þátt í fræðslustarfi sjúkrahússins og leiðbeinir nemum
Þáttaka í þróun starfseminnar
Hæfniskröfur
Umsækjendur þurfa að hafa lokið viðurkenndu námi í klínískri næringarfræði og hafa löggildingu frá íslenskum heilbrigðisyfirvöldum
Starfið krefst einnig skipulagshæfileika, frumkvæðis í starfi og hæfni til að vinna sjálfstætt.
Reynsla af næringarráðgjöf/meðferðum við fjölbreyttan skjólstæðingahóp er æskileg.
Reynsla af klínískri næringarráðgjöf á legu- og göngudeildum sjúkrahúsa er kostur.
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Klínískur næringarfræðingur við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
15.10.2026
Umsóknarfrestur
26.10.2026