
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
03.11.2026
Umsóknarfrestur
16.11.2026
Hjúkrunarfræðingur á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G
Langar þig að starfa þar sem faglegar áskoranir, fjölbreytni og öflug liðsheild fara saman?
Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum hjúkrunarfræðingum sem vilja taka þátt í spennandi og líflegu starfi á 12G Landspítala við Hringbraut. Á deildinni sinnum við fjölbreyttum hópi hjarta-, lungna-, augn- og nýrnasjúklinga og gefst einstakt tækifæri til að byggja upp víðtæka þekkingu og sérhæfða færni á blandaðri skurð- og lyflækningadeild. Á þessari deild eru möguleikarnir óteljandi varðaði sjúklingahópa.
Hjá okkur starfar öflugur hópur fagfólks í nánu teymissamstarfi þar sem þekking, þróun og góður starfsandi fara saman. Við leggjum áherslu á að skapa starfsumhverfi þar sem hver og einn fær tækifæri til að vaxa í starfi og hafa raunveruleg áhrif á þjónustu við sjúklinga.
Deildin er í innleiðingu á Fundamentals of Care með markmið að veita bestu hjúkrun sem mögulegt er.
Við tökum vel á móti nýju starfsfólki með einstaklingsmiðaðri aðlögun út frá þekkingu og fyrri reynslu.
Vinnuvikan er 36 stundir fyrir starfsfólk í fullri vaktavinnu og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.
Við bjóðum upp á störf í 60-100% starfshlutfalli og eru störfin laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Við erum sveigjanleg og hlökkum til að heyra frá þér!
Helstu verkefni og ábyrgð
Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
Taka virkan þátt í þróun og uppbyggingu verkefna á deild
Fylgjast með nýjungum í hjúkrun
Taka þátt í þverfaglegri teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi hjúkrunarfræðings
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð samskiptahæfni, jákvæðni og áhugi á teymisvinnu
Hæfni til að vinna vel undir álagi
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna.
Tungumálahæfni: íslenska 3/5, enska 3/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
03.11.2026
Umsóknarfrestur
16.11.2026