
Þjónustuaðili
Hafrannsóknastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Rannsóknastarf með starfsstöð í Vestmannaeyjum
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.09.2026
Umsóknarfrestur
16.10.2026
Rannsóknastarf með starfsstöð í Vestmannaeyjum
Hafrannsóknastofnun óskar eftir að ráða aðila við rannsóknir sýna og gagnavinnslu í starfsstöð stofnunarinnar í Vestmannaeyjum. Starfið felst í fjölbreyttri vinnu við öflun og úrvinnslu gagna í landi og í rannsóknaleiðöngrum á sjó.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í sýnatöku úr lönduðum afla nytjastofna
Þátttaka í rannsóknaleiðöngrum á sjó
Úrvinnsla sýna
Samskipti við útgerðir og sjómenn
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Reynsla og/eða menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af sjóferðum, æskilegt.
Góð almenn tölvukunnátta.
Metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og samskipta hæfni til að vinna í teymi.
Góð íslenska og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókninni skal fylgja:
Ítarleg ferilskrá - hámark 2. bls
Afrit af prófskírteinum (Bs, MS, doktorspróf og/eða annað sem á við)
Kynningarbréf þar sem fram kemur bakgrunnur umsækjenda og ástæða þess að sótt er um starfið.
Nöfn tveggja meðmælenda ásamt samskiptaupplýsingum þeirra
Athugið:
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina.
Hafrannsóknarstofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Við ráðningu í störf við Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu Hafrannsóknastofnunar.
Sótt er um í gegnum starfatorg og er öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir
Um stofnunina
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Atvinnuvegaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki um sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Starfsemin felst einkum í fjölbreyttum rannsóknum og ráðgjafastarfi sem oft felur í sér innlent og alþjóðlegt samstarf við háskóla eða aðrar rannsóknastofnanir.. Stofnunin rekur auk höfuðstöðvar í Hafnarfirði starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð og tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 200 manns í fjölbreyttum störfum.
Gildi Hafrannsóknastofnunar eru: Þekking - Samvinna - Þor
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Valur Bogason
Tölvupóstur: valur.bogason@hafogvatn.is
Jónas Páll Jónasson
Tölvupóstur: jonas.jonasson@hafogvatn.is

Þjónustuaðili
Hafrannsóknastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Rannsóknastarf með starfsstöð í Vestmannaeyjum
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.09.2026
Umsóknarfrestur
16.10.2026