
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðinám í hjúkrun og ljósmóðurfræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
01.09.2026
Umsóknarfrestur
01.10.2026
Sérfræðinám í hjúkrun og ljósmóðurfræði
Landspítali auglýsir eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum í launað sérfræðinám til undirbúnings veitingar sérfræðileyfis á klínísku sérsviði í hjúkrun og ljósmóðurfræði.
Tilgangur sérfræðináms er að efla og bæta klíníska færni og þekkingu verðandi sérfræðinga í hjúkrun og ljósmóðurfræði á viðkomandi sérsviði. Jafnframt að þeir fái þjálfun í gagnreyndum vinnubrögðum og reynslu í hlutverki sérfræðings undir leiðsögn sérfræðinga.
Sérfræðinámið er einstaklingsmiðað og stendur yfir í 9-18 mánuði, í 80-100% starfi. Hjúkrunarfræðingur/ljósmóðir í sérfræðinámi fær 20% af sínum vinnutíma, í samráði við yfirmann, til að vinna að markmiðum sínum í náminu.
Sérfræðinámið hefst í janúar næstkomandi, eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttakandi:
Leggur fram námsáætlun við upphaf sérfræðináms. Gerir leiðsagnarnefnd og deildarstjóra reglulega grein fyrir framvindu námsins og ber ábyrgð á að hún sé í samræmi við markmið
Veitir sérhæfða meðferð, annast ákveðna sjúklingahópa eða vinnur að þróun hjúkrunar í samræmi við klínískar áherslu sérfræðinámsins
Stuðlar að þverfaglegri samvinnu, vinnur gæðaverkefni og hefur frumkvæði að nýjungum í meðferð eftir því sem við á
Veitir ráðgjöf og fræðslu til sjúklinga, aðstandenda eða starfsmanna um sérhæfða meðferð á sínu sérsviði
Tekur þátt í reglubundnum umræðutímum og skilar formlegri ígrundun
Hæfniskröfur
Meistarapróf sem uppfyllir skilyrði reglugerða um hjúkrunarfræðinga nr.512/2013 með síðari breytingum og/eða um ljósmæður nr.1089/2012
Áhugi og metnaður til að þróa sérfræðiþekkingu á tilteknu sviði hjúkrunar- eða ljósmóðurfræði og vera í fararbroddi í umbótum sem byggja á gagnreyndri þekkingu
Mælst er til að hjúkrunarfræðingur/ ljósmóðir sé ekki í stöðu aðstoðardeildarstjóra á meðan á sérfræðinámi stendur
Íslenskt hjúkrunar-/ljósmóðurleyfi
Mjög góð íslenskukunnátta, bæði í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn þarf að fylgja:
Náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum
Starfsleyfi ef umsækjandi er ekki þegar í starfi á Landspítala
Kynningarbréf þar sem tilgreind eru persónuleg markmið með sérfræðináminu og lýsing á fyrirhugaðri sérhæfingu
Samþykki næsta yfirmanns fyrir umsókn
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Framkvæmdastjóri hjúkrunar, kennslustjóri sérfræðináms og aðrir eftir atvikum taka viðtöl við umsækjendur. Forstöðuhjúkrunarfræðingur sviðs ræður í starfið í samráði við framkvæmdastjóra hjúkrunar og viðkomandi deildarstjóra.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir, hjúkrun
Tungumálahæfni: Íslenska 5/5
Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Ásdís Guðmundsdóttir
kennslustjóri sérfræðináms í hjúkrun og ljósmóðurfræði
Tölvupóstur: asdisgu@landspitali.is
Sími: 695-6811

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðinám í hjúkrun og ljósmóðurfræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
01.09.2026
Umsóknarfrestur
01.10.2026