Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í geðlækningum á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Staðsetning
Vestfirðir
Starfshlutfall
25-50%
Starf skráð
20.10.2026
Umsóknarfrestur
13.11.2026
Sérfræðingur í geðlækningum á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða sérfræðing í geðlækningum. Um er að ræða 25% - 50% starf á spennandi vettvangi sem er bæði ábyrgðamikið og krefjandi.
Unnið er í nánu samstarfi við þverfaglegt geðheilsuteymi. Jafnframt felst í starfinu þátttaka í kennslu annarra heilbrigðisstétta og handleiðslu sérnámslækna, með sveigjanlegu starfshlutfalli (25-50%) með möguleika á staðvinnu og fjarvinnu.
Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 270 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef stofnunarinnar (<www.hvest.is>).
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis auk flutningsstyrks.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mat og greining á vanda skjólstæðinga
Þjónusta við skjólstæðinga á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum.
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu með sálfræðingum, félagsráðgjöfum og læknum í geðheilsuteymi HVest
Þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, handleiðsla sérnámslækna í heimilislækningum.
Vinnuhlutfall 25-50%. Bæði vinnulotur á staðnum og fjarvinna.
Hæfniskröfur
Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðiréttindi í geðlækningum
Áhugi á að veita vandaða og gagnreynda meðferð
Áhugi á þróun og sérhæfingu í starfi og sveigjanleiki til að tileinka sér nýjungar
Fagleg þekking, reynsla og hæfni á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragð.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Stöðunefnd lækna metur umsækjendur skv. 36. gr. laga 40/2007, sjá einnig umfjöllun á vef Embættis landlæknis, starfsreglur nefndarinnar og verklagsreglur stöðunefndarinnar. Mikilvægt er því að umsókninni fylgi sérprent eða ljósrit af greinum sem umsækjandi hefur skrifað og birt. Þá er umsækjanda heimilt að senda inn meðmæli eða önnur gögn sem votta hvernig hann hefur staðið sig í starfi. Umsögn stöðunefndar byggist á innsendum gögnum. Stöðunefnd getur tekið sér sex vikur til að yfirfara innsendar umsóknir.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum, mati stöðunefndar lækna og umsögnum meðmælenda.
Utan vinnu eru lífsgæðin mikil. Tækifærin til útivistar eru allt um kring, enginn tími fer í ferðalög til og frá vinnu. Börnin eru eins og blóm í eggi í leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttastarfi, menntaskóla og jafnvel lýðskóla eða háskóla.
Fullt af spennandi atvinnutækifærum fyrir maka og margvísleg starfsemi sem krefst háskólamenntunar á svæðinu, sjá til dæmis laus störf á vef Ísafjarðarbæjar.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.
Starfshlutfall er 25-50%
Umsóknarfrestur er til og með 13.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Kristrún Guðmundsdóttir
Tölvupóstur: kristrun.gudmundsdottir@hvest.is
Thelma Björk Guðmundsdóttir
Tölvupóstur: thelma.gudmundsdottir@hvest.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í geðlækningum á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Staðsetning
Vestfirðir
Starfshlutfall
25-50%
Starf skráð
20.10.2026
Umsóknarfrestur
13.11.2026