
Þjónustuaðili
Veðurstofa Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í loftslagsaðlögun og gagnagreiningu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.11.2026
Umsóknarfrestur
30.11.2026
Sérfræðingur í loftslagsaðlögun og gagnagreiningu
Veðurstofa Íslands leitar að sérfræðingi meðsterka greiningarhæfni, góða færni í gagnavinnslu og mjög góða tölvukunnáttu til starfa á Skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar (SLA).
Starfið felst í að vinna með gögn og upplýsingar um loftslagsbreytingar og nýta niðurstöðurnar til að styðja við áhættumat, stefnumótun og aðlögunaraðgerðir. Unnið er í nánu samstarfi við sérfræðinga, stjórnvöld, sveitarfélög og aðra samstarfsaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
Söfnun, samræming, gæðaprófun og greining gagna um loftslagsbreytingar, áhrif þeirra og aðlögun.
Skýr og myndræn framsetning gagna og niðurstaðna fyrir ólíka notendahópa.
Þátttaka í viðkvæmni- og áhættumati vegna loftslagsbreytinga.
Þróun landsbundins aðlögunarvettvangs og samþætting gagna, leiðbeininga og stafrænna verkfæra.
Verkefnasamhæfing, eftirfylgni, árangursmat og skýrslugerð.
Samstarf við sveitarfélög og þátttaka í vinnustofum, samráði og miðlun.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Færni í vinnslu, greiningu og framsetningu gagna.
Mjög góð tölvukunnátta og færni í notkun verkfæra til gagnavinnslu og greiningar.
Hæfni til að meta gæði gagna, greina samhengi og draga rökstuddar ályktanir.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Góð skipulagshæfni, sjálfstæði og samskiptafærni.
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Þekking eða reynsla á sviði loftslagsbreytinga, umhverfismála, náttúruvár, áhættumats eða sjálfbærni er kostur.
Farsæl reynsla af Python, landupplýsingakerfum (GIS), gagnagrunnum eða þróun stafrænnar þjónustu er kostur.
Í gildum Veðurstofunnar er lögð áhersla á að vera áreiðanleg, samvinnufús og hugvitsöm. Ráðningar taka mið af þessum gildum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Á stofnuninni eru tækifæri til faglegrar þróunar og vinnutími er sveigjanlegur.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Umsókninni skal fylgja starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstyður hæfni sína fyrir starfið.
Á Veðurstofu Íslands starfar fjölbreyttur og samstilltur hópur fólks við að efla öryggi og áfallaþol samfélagsins gegn náttúruvá og áhrifum loftslagsbreytinga. Veðurstofan þjónustar allt samfélagið með því að vakta, gefa út spár og viðvaranir vegna veðurs, jarðskjálfta, eldgosa, hlaupa, vatnsflóða og ofanflóða. Sérfræðingar stofnunarinnar eru leiðandi á sínu sviði og styðja viðbrögð samfélagsins vegna náttúruvár og áhrifa loftslagsbreytinga með gagnasöfnun, varðveislu gagna, greiningu, rannsóknum, ráðgjöf og miðlun um náttúrufar á Íslandi. Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa um 170 manns. Auk þess starfa um 50 manns við athugana- og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Veðurstofa Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í loftslagsaðlögun og gagnagreiningu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.11.2026
Umsóknarfrestur
30.11.2026