
Þjónustuaðili
Hafrannsóknastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður í Tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofnunar
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.11.2026
Umsóknarfrestur
19.11.2026
Starfsmaður í Tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofnunar
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, auglýsir laust til umsóknar starf í Tilraunaeldisstöð stofnunarinnar í Grindavík
Í Tilraunaeldisstöðinni fer fram fjölbreytt rannsókna- og þróunarstarf sem tengist fiskeldi og líffræði fiska og annarra vatnalífvera. Rannsóknirnar ná til tegunda bæði í ferskvatni og sjó og miða meðal annars að því að þróa og bæta eldisaðferðir, auk þess að auka þekkingu á líffræði mismunandi tegunda.Starfið býður upp á tækifæri til að vinna með fjölbreyttar eldislífverur og taka þátt í spennandi rannsókna- og þróunarverkefnum. Um er að ræða fjölbreytt og verklegt starf þar sem dagleg umhirða eldislífvera og rekstur eldiskerfa fara saman við þátttöku í rannsóknum. Lögð er áhersla á að ráða lausnamiðaðan einstakling sem hefur góða færni í að vinna sjálfstætt og í teymi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn eldisstörf og umhirða fiska á öllum stigum eldisins, frá hrognum til fullorðinna fiska.
Ræktun og umhirða lifandi fæðudýra.
Eftirlit með eldiskerfum, vatnsgæðum og aðbúnaði eldislífvera.
Þátttaka í framkvæmd rannsókna og tilrauna, meðal annars við sýnatökur, mælingar og skráningu gagna.
Þrif, viðhald og önnur verkefni sem tengjast daglegum rekstri stöðvarinnar.
Hæfniskröfur
Menntun á sviði fiskeldis, líffræði, búvísinda eða skyldra greina er æskileg. Handbær reynsla af fiskeldi getur komið í stað formlegrar menntunar.
Reynsla og þekking á fiskeldisstörfum, kostur
Áhugi á fiskeldi, líffræði og rannsókna- og þróunarstarfi.
Verkleg færni og reynsla af almennu viðhaldi, kostur
Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar.
Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi.
Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókninni skal fylgja:
Ítarleg ferilskrá - hámark 2. bls
Afrit af prófskírteinum (Bs, MS, doktorspróf og/eða annað sem á við)
Kynningarbréf þar sem fram kemur bakgrunnur umsækjenda og ástæða þess að sótt er um starfið.
Nöfn tveggja meðmælenda ásamt samskiptaupplýsingum þeirra
Athugið:
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina.
Hafrannsóknarstofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Við ráðningu í störf við Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu Hafrannsóknastofnunar.
Sótt er um í gegnum starfatorg og er öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir
Um stofnunina
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Atvinnuvegaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki um sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Starfsemin felst einkum í fjölbreyttum rannsóknum og ráðgjafastarfi sem oft felur í sér innlent og alþjóðlegt samstarf við háskóla eða aðrar rannsóknastofnanir.. Stofnunin rekur auk höfuðstöðvar í Hafnarfirði starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð og tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 200 manns í fjölbreyttum störfum.
Gildi Hafrannsóknastofnunar eru: Þekking - Samvinna - Þor
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðni Guðbergsson
Tölvupóstur: gudni.gudbergsson@hafogvatn.is
Tómas Árnason
Tölvupóstur: tomas.arnason@hafogvatn.is

Þjónustuaðili
Hafrannsóknastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður í Tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofnunar
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.11.2026
Umsóknarfrestur
19.11.2026