Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Norður­landi eystra

Upplýsingar um starf

Starf

Mannauðsstjóri - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.10.2026

Umsóknarfrestur

02.11.2026

Mannauðsstjóri - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra leitar eftir drífandi og framsýnum einstaklingi í starf mannauðsstjóra embættisins. Um spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf er að ræða sem heyrir undir lögreglustjóra. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri ráði í stöðuna frá og með 1. janúar 2027.

Framtíðarsýn embættis Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra er framsækið embætti fyrir vaxandi samfélag.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg forysta í mannauðsmálum embættisins

  • Þróun mannauðsstefnu og eftirfylgni hennar

  • Þróun starfsumhverfis í anda stefnu embættisins

  • Skipulag fræðslu- og starfsþróun starfsmanna

  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk

  • Ábyrgð á helstu mannauðsferlum, gerð starfagreininga og starfslýsinga

  • Yfirumsjón með ráðningum, móttöku nýs starfsfólks, starfsþróun og starfslokum

  • Túlkun kjarasamninga- og stofnanasamninga

  • Samskipti við stéttarfélög, réttindamál og aðbúnaður

  • Gæðamál, aðgengi upplýsinga starfsmanna á innri vef

  • Leiða verkefni sem stuðla að þátttöku, liðsheild og vellíðan.

  • Vinna við úrlausn ágreinings- og agamála.

  • Seta í yfirstjórn embættisins og þátttaka í stefnumótun

  • Önnur verkefni sem starfsmanni eru falin af yfirmanni

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, auk framhaldsmenntunar á sviði mannauðsstjórnunar eða sambærilegrar menntunar

  • Yfirgripsmikil þekking og reynsla af mannauðsmálum

  • Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu og vinnurétti

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni

  • Mjög góð þjónustulund og jákvætt viðhorf

  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi

  • Árangurs- og lausnamiðuð hugsun

  • Þekking og farsæl reynsla af því að leiða breytingar

  • Skipulagshæfni, nákvæmni og öguð vinnubrögð

  • Hæfni til að miðla upplýsingum í rituðu og mæltu máli á íslensku og ensku

Þess er vænst að umsækjendur hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum ásamt nöfnum tveggja umsagnaraðila. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að vanda umsóknir sínar.

Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til að staðreyna hvort umsækjandi uppfylli skilyrði 1. mgr. 28. gr. a lögreglulaga nr. 90/1996 er lögreglustjóra heimilt skv. 28. gr. a. sömu laga að afla upplýsinga um umsækjendur úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Páley Borgþórsdóttir

lögreglustjóri

Tölvupóstur: pb02@logreglan.is

Sími: 444-2800

Bergur Jónsson

yfirlögregluþjónn

Tölvupóstur: bergur.jonsson@logreglan.is

Sími: 444-2800

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Norður­landi eystra

Upplýsingar um starf

Starf

Mannauðsstjóri - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.10.2026

Umsóknarfrestur

02.11.2026