Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Öryggisstjóri Vegagerðarinnar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.09.2026
Umsóknarfrestur
07.10.2026
Öryggisstjóri Vegagerðarinnar
Vegagerðin leitar að öflugum öryggisstjóra til að leiða og samræma öryggis- og vinnuverndarmál stofnunarinnar. Eitt af meginmarkmiðum Vegagerðarinnar er Öryggi að leiðarljósi: Við höfum öryggi og öryggismenningu að leiðarljósi í allri okkar starfsemi, jafnt fyrir notendur samgöngukerfisins, starfsfólk Vegagerðarinnar og samstarfsaðila hennar.
Öryggisráð er starfandi hjá Vegagerðinni og hefur það hlutverk að hafa eftirlit með framgangi öryggismála í allri starfseminni. Öryggisráð er leitt af forstjóra.
Öryggisstjóri starfar á skrifstofu forstjóra, leiðir og samræmir málaflokk öryggis og vinnuumhverfis. Öryggisstjóri stuðlar að því að skipulag og framkvæmd öryggis- og vinnuverndarmála sé í samræmi við lög, reglugerðir og stefnu Vegagerðarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á því að skipulag og verklag í öryggis- og vinnuverndarmálum sé í samræmi við lög og reglugerðir.
Öryggisstjóri er ráðgjafi og starfsmaður Öryggisráðs.
Leiðir stefnumótun, áætlanagerð og markmiðasetningu í öryggis- og vinnuverndarmálum í samráði við Öryggisráð.
Mótun, stýring og eftirfylgni verklags og verkefna í öryggis- og vinnuverndarmálum, skýrslugerð og árangursmælingar (KPI).
Umsjón með starfsemi öryggisnefndar í samráði við formann nefndar.
Ábyrgð á atvikaskráningagrunni og meðhöndlun skráninga ásamt eftirfylgni á úrbótum.
Skipulagning þjálfunar og fræðslu til starfsmanna og stjórnenda í öryggis- og vinnuverndarmálum.
Stuðla að virkri öryggis- og vinnuverndarmenningu.
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi.
Sérhæfð þekking og reynsla af stjórnun öryggis- og vinnuverndarmála.
Reynsla af stefnumótun, innleiðingu verklags og markvissri eftirfylgni.
Færni til að halda yfirsýn yfir fjölbreytt verkefni.
Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og aðgengilegan hátt.
Skipulagshæfni, frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt.
Framúrskarandi öryggisvitund, samskiptafærni og umbótasinnuð hugsun.
Mjög góð tölvukunnátta.
Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Starfsstöð öryggisstjóra er í miðstöð Vegagerðarinnar í Garðabæ en starfið felur í sér ferðalög á aðrar starfsstöðvar.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Öryggisstjóri Vegagerðarinnar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.09.2026
Umsóknarfrestur
07.10.2026