
Þjónustuaðili
Ráðgjafar- og greiningarstöð
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
05.10.2026
Umsóknarfrestur
15.10.2026
Sálfræðingar
Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laus til umsóknar störf tveggja sálfræðinga. Leitað er að einstaklingum sem hafa brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Greining, ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna með alvarlegar raskanir í taugaþroska
Vinna í þverfaglegum teymum innan og utan stofnunar m.a. varðandi greiningu, ráðgjöf og eftirfylgd
Þátttaka í fræðslu- og rannsóknarstarfi innan og utan stofnunar
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem sálfræðingur
Þekking og reynsla af notkun helstu greiningartækja vegna greiningar þroskafrávika og/eða einhverfu hjá börnum
Þekking og reynsla af vinnu með börnum og/eða unglingum
Þekking og reynsla af ráðgjöf og fræðslu til foreldra og/eða fagfólks
Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið á starfatorg.is. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar.
Á Ráðgjafar- og greiningarstöð starfa tæplega 60 starfsmenn. Hlutverk stofnunarinnar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Sjá nánar www.rgr.is. Ráðgjafar- og greiningarstöð er með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma. Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing.
Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.10.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Ráðgjafar- og greiningarstöð
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
05.10.2026
Umsóknarfrestur
15.10.2026