Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á kvenlækningadeild 21A

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

30.10.2026

Umsóknarfrestur

16.11.2026

Sjúkraliði á kvenlækningadeild 21A

Sjúkraliði óskast til starfa á kvenlækningadeild 21A Landspítala. Á deildinni starfar samhent teymi starfsfólks sem veitir fjölþætta heilbrigðisþjónustu allan sólarhringinn. Deildin er annars vegar göngudeild, bráðamóttaka og aðgerðarstofa og hins vegar dag- og legudeild. Deildin sinnir skjólstæðingum með góðkynja og illkynja sjúkdóma í grindarholi og brjóstum sem og skjólstæðingum frá öðrum sérgreinum almennra skurðlækninga. Þá sinnir deildin bráðatilvikum vegna kvensjúkdóma utan opnunartíma bráðaþjónustu kvennadeilda.

Í boði er spennandi, krefjandi og líflegt starfsumhverfi, góður starfsandi og fjölbreytt tækifæri til faglegrar þróunar. Vinnufyrirkomulag er vaktavinna og starfshlutfall 60-100%.

Starfið er laust frá 1. janúar 2027 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hjúkrun sjúklinga fyrir og eftir aðgerðir

  • Umönnun og eftirlit aðgerðarsjúklinga, undirbúningur þeirra og fyrirbygging fylgikvilla

  • Umönnun annarra sjúklinga á deild með ýmis vandamál í kvenlíffærum

  • Virk þátttaka í teymis- og umbótastarfi

  • Aðstoð á göngudeild eftir þörfum

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi

  • Faglegur metnaður, frumkvæði og ábyrgð í starfi

  • Jákvætt viðmót, sveigjanleiki og góðir samskiptahæfileikar

  • Reynsla í starfi sjúkraliða kostur

  • Hæfni og geta til að starfa í teymi

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hrund Magnúsdóttir

Tölvupóstur: hrundmag@landspitali.is

Sími: 543-3041

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á kvenlækningadeild 21A

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

30.10.2026

Umsóknarfrestur

16.11.2026