
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í félagsfræði afbrota
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.09.2026
Umsóknarfrestur
12.10.2026
Lektor í félagsfræði afbrota
Laust er til umsóknar fullt starf lektors í félagsfræði afbrota við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun. Meginhluti kennslunnar er í meistaranámi í afbrotafræði sem kennt er á ensku.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rannsóknir á sviði afbrotafræði eða félagsfræði afbrota
Kennsla námskeiða á framhaldsstigi og leiðbeining MA nema í afbrotafræði
Eftir atvikum kennsla á grunnstigi og leiðbeining BA nema í félagsfræði
Stjórnun sem m.a. felst í nefndasetu
Öflun innlendra og erlendra rannsóknastyrkja
Þátttaka í þróun náms við námsbraut í félagsfræði
Þátttaka í opinberri umræðu á rannsóknasviði viðkomandi
Hæfniskröfur
Doktorspróf í félagsfræði, afbrotafræði eða skyldum greinum.
Rannsóknavirkni á sviði afbrotafræði eða félagsfræði afbrota á ritrýndum, alþjóðlegum vettvangi þar sem gerðar eru strangar fræðilegar kröfur
Reynsla af styrkjasókn í innlenda eða erlenda samkeppnissjóði er æskileg
Reynsla af kennslu á háskólastigi
Góð enskukunnátta í ræðu og riti
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er æskileg við ráðningu en umsækjendur sem ekki hafa íslensku sem móðurmál skulu innan þriggja ára frá upphafi ráðningar hafa tileinkað sér nægilega kunnáttu í íslensku til að geta sinnt stjórnunarstörfum og kennsluverkefnum sem krefjast íslenskukunnáttu innan þriggja ára
Samskiptahæfni, áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt góðri hæfni til að miðla þekkingu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Við ráðningu verður miðað við að sá/sú er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum námsbrautar í félagsfræði og Félagsvísindasviðs.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjandi sem nú þegar gegnir akademískri stöðu við íslenskan eða erlendan háskóla getur sótt um framgang í sambærilega stöðu við ráðningu.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.10.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í félagsfræði afbrota
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.09.2026
Umsóknarfrestur
12.10.2026