Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Iðjuþjálfi við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
75-90%
Starf skráð
19.10.2026
Umsóknarfrestur
03.11.2026
Iðjuþjálfi við Sjúkrahúsið á Akureyri
Laus er til umsóknar 75-90% staða iðjuþjálfa við Sjúkrahúsið á Akureyri. Um er að ræða tímabundna stöðu til eins árs v/fæðingarorlofs, með möguleika á framlengingu og er staðan laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Við Sjúkrahúsið á Akureyri starfa iðjuþjálfar á bráðadeildum sem og á endurhæfingardeild SAk, en þar er starfsemin rekin á legudeild, dag- og göngudeild.
Helstu verkefni og ábyrgð
Staðan er fjölbreytt og gefur tækifæri til að takast á við margbreytileg og spennandi verkefni ásamt því að hafa áhrif á áframhaldandi nýsköpun, þróun og uppbyggingu iðjuþjálfunar innan stofnunarinna. Helstu verkefni iðjuþjálfa eru mat og þjálfun í athöfnum daglegs lífs, fjölskyldufundir, mat á þörf fyrir hjálpartæki og útvegun þeirra, heimilisathuganir fyrir útskrift og eftirfylgd.
Iðjuþjálfi heldur einnig fræðslu fyrir starfsfólk sjúkrahússins.
Í gildi er starfssamningur milli SAk og Háskólans á Akureyri um kennslu, rannsóknir og endurmenntun.
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu, reynslu og áhuga, sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfileika í samskiptum og samvinnu
Reynsla af starfi iðjuþjálfa á sérgreinasjúkrahúsi er kostur
Þekking og reynsla af teymisvinnu er kostur
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 75-90%
Umsóknarfrestur er til og með 03.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Iðjuþjálfi við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
75-90%
Starf skráð
19.10.2026
Umsóknarfrestur
03.11.2026