Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.10.2026

Umsóknarfrestur

18.11.2026

Hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga

Við leitum eftir kraftmiklum leiðtoga til að leiða og efla starfsemi dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga á Landspítala. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðuhjúkrunarfræðing, yfirlækna og aðra stjórnendur og samstarfsfólk.

Á deildinni starfa samhent teymi sem sinna þjónustu við sjúklinga með blóðsjúkdóma og krabbamein. Mikill vöxtur er í nýgreiningum krabbameina og að unnið er að alþjóðlegri vottun þjónustunnar. Hjúkrunardeildarstjóri mun taka virkan þátt í umbótum tengdum þessum verkefnum.

Hjúkrunardeildarstjóri þarf að búa yfir afburða hæfni í samskiptum og stuðla að teymisvinnu innan deildar og við aðra stjórnendur og samstarfsaðila. Hjúkrunardeildarstjóri ber þríþætta ábyrgð þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð. Hjúkrunardeildarstjóri er yfirmaður starfsfólks á deildinni sem telur um 30 starfsmenn, stjórnar daglegum rekstri og er leiðandi um fagleg málefni deildarinnar í samstarfi við yfirlækni blóðlækninga og krabbameinslækninga.

Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. janúar 2027 eða eftir samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur krabbameinsþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi, gæðum og þróun starfseminnar

  • Starfsmannaábyrgð og dagleg stjórnun starfsfólks á deildinni

  • Fjárhagsleg ábyrgð á rekstri deildarinnar

  • Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt

  • Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi deildarinnar

  • Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan þjónustunnar og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli

  • Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur

  • Framhaldsmenntun í hjúkrun og/eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur

  • Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri ásamt stýringu mannauðs er kostur

  • Leiðtogahæfni, frumkvæði, áhugi og metnaður til að leiða breytingar og umbætur

  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi

  • Mjög góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót

  • Sýn og hæfni til að leiða faglega þróun hjúkrunar og gæða- og öryggismál

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunardeildarstjóri, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, deildarstjóri, stjórnunarstarf

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 18.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Halldóra Hálfdánardóttir

forstöðuhjúkrunarfræðingur

Tölvupóstur: hallhalf@landspitali.is

Sími: 698-1347

Vigdís Hallgrímsdóttir

framkvæmdastjóri

Tölvupóstur: vigdisha@landspitali.is

Sími: 825-3502

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.10.2026

Umsóknarfrestur

18.11.2026