Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

15.10.2026

Umsóknarfrestur

02.11.2026

Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins

Við óskum eftir að ráða öflugan heilbrigðisgagnafræðing til starfa á Barnaspítala Hringsins, Landspítala.

Í boði er fjölbreytt og líflegt starf með tækifærum til starfsþróunar. Starfið felst í almennum og sérhæfðum störfum heilbrigðisgagnafræðinga ásamt nánu samstarfi við fagteymi Barnaspítalans. Verkefnin eru fjölbreytt og fela í sér mikil þverfagleg samskipti.

Þjónustan er í stöðugri framþróun og lögð er áhersla á notendamiðaða þjónustu og styttingu biðtíma. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki. Heilbrigðisgagnafræðingar eru lykilstarfsfólk og framlag þeirra í daglegri starfsemi er mikils metið.

Starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi og unnið er í dagvinnu virka daga. Ráðið verður í starfið frá 1. desember 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í þverfaglegri vinnu með fagteymum

  • Gagnavinnsla og umsýsla rafrænna sjúkraskráa og vinnulista

  • Móttaka, umsýsla og afhending gagna

  • Samskipti við foreldra og aðra sem koma að málefnum barna í þjónustu Barnaspítala

  • Þátttaka í umbótastarfi og þróun þjónustu

  • Gæðaeftirlit

  • Önnur verkefni í samráði við næsta yfirmann

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem heilbrigðisgagnafræðingur

  • Jákvætt viðmót, þjónustulipurð og samskiptahæfni

  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði í starfi og geta til að vinna undir álagi

  • Góð íslensku- og enskukunnáttu

  • Góð tölvukunnátta er skilyrði, þekking á Sögukerfi Landspítala er kostur

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisgagnafræðingur

Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristján Óskarsson

Tölvupóstur: kristosk@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

15.10.2026

Umsóknarfrestur

02.11.2026