
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í jarðefnafræði og umhverfisjarðfræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.09.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026
Lektor í jarðefnafræði og umhverfisjarðfræði
Laust er til umsóknar fullt starf lektors á sviði jarðefnafræði og umhverfisjarðfræði við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir (40%), kennslu (48%) og stjórnun (12%).
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla í grunnnámi auk kennslu í framhaldsnámi á sérsviði viðkomandi
Leiðbeining nemenda í grunn- og framhaldsnámi
Leiða og taka þátt í rannsóknaverkefnum á sviði jarðefnafræði og umhverfisjarðfræði og að nýta jarðfræði Íslands í rannsóknum
Þátttaka í stjórn deildar og þátttaka í þróun og skipulagningu náms
Leiða og taka þátt í rekstri og þróun rannsóknastofa í jarðefnafræði
Þátttaka í samstarfsverkefnum innan og utan háskólans
Hæfniskröfur
Doktorspróf í jarðefnafræði, jarðfræði eða skyldri grein
Reynsla af háskólakennslu og leiðbeiningu nemenda er kostur
Rannsóknarvirkni á sviði jarðefnafræði og umhverfisjarðfræði að teknu tilliti til starfsaldurs
Gott vald á ensku, bæði í ræðu og riti
Góð samstarfshæfni, lipurð í samskiptum og færni í að miðla þekkingu
Hæfni til kennslu á íslensku er kostur. Gerð er krafa um að innan fjögurra ára frá ráðningu hafi B1-stigi verið náð Háskóli Íslands býður upp á aðstoð við að öðlast nauðsynlega tungumálafærni
Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Jarðvísindadeildar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að störf hefjist eigi síðar en 1. ágúst 2027.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í jarðefnafræði og umhverfisjarðfræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.09.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026