Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Ertu sérfræðingur í geðhjúkrun?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

15.09.2026

Umsóknarfrestur

28.09.2026

Ertu sérfræðingur í geðhjúkrun?

Starf sérfræðings í geðhjúkrun á göngudeild lyndisraskana í geðþjónustu Landspítala er laust til umsóknar. Ráðning er frá 1. nóvember 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Á göngudeild lyndisraskana starfa þverfagleg teymi sem veita sérhæfða þjónustu. Áhersla er lögð á heildræna nálgun, gagnreynda meðferð og samfellda þjónustu í nánu samstarfi við skjólstæðinga og aðstandendur. Jafnframt er lögð áhersla á uppbyggingu og eflingu geðhjúkrunar sem verður eitt af hlutverkum sérfræðings í geðhjúkrun í samstarfi við stjórnendur.

Leitað er að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi í geðhjúkrun sem hefur áhuga á þróun þjónustu, uppbyggingu geðhjúkrunar og umbótastarfi. Gerð er krafa um leiðtogahæfni og góða færni í þverfaglegu samstarfi. Sérfræðingur í geðhjúkrun starfar samkvæmt starfslýsingu sérfræðinga í hjúkrun á Landspítala og ber ábyrgð á framþróun hjúkrunar innan göngudeildar lyndisraskana og starfar einnig þvert á einingar geðþjónustu.

Sérfræðingur í geðhjúkrun vinnur sjálfstætt samkvæmt reglugerð nr. 512/2013 um menntun, réttindi og skyldur sérfræðinga í hjúkrun og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart stofnun og næsta yfirmanni.

Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi starf í öflugu þverfaglegu umhverfi þar sem áhersla er lögð á faglegan metnað, nýsköpun, þróun þjónustu og stöðuga uppbyggingu þekkingar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Klínískt starf og sérhæfð ráðgjöf til skjólstæðinga og aðstandenda

  • Þróun, innleiðing og mat á gagnreyndum hjúkrunar- og meðferðarúrræðum

  • Forysta í gæða- og umbótaverkefnum sem stuðla að bættri þjónustu

  • Fræðsla, handleiðsla og ráðgjöf til hjúkrunarfræðinga, annars heilbrigðisstarfsfólks og nemenda

  • Virk þátttaku í rannsóknum, þróunarverkefnum og akademísku starfi

  • Þátttaka í stefnumótun og faglegri þróun geðhjúkrunar innan geðþjónustu Landspítala

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í hjúkrun og sérfræðileyfi í geðhjúkrun

  • Klínísk reynsla af geðheilbrigðisþjónustu og meðferð einstaklinga með lyndisraskanir

  • Reynsla af gæða- og umbótastarfi

  • Reynsla af kennslu, handleiðslu og fræðslu

  • Hæfni til að leiða þróunarverkefni sem stuðla að faglegri framþróun

  • Framúrskarandi samskiptahæfni

  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð

  • Góð íslenskukunnátta, bæði í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, rannsóknum, gæða- og þróunarverkefnum

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðingur í hjúkrun, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Kleppsgörðar, 104 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sandra Friðriksdóttir

Tölvupóstur: sandraf@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Ertu sérfræðingur í geðhjúkrun?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

15.09.2026

Umsóknarfrestur

28.09.2026