Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar - Gjörgæsla Hringbraut

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

15.09.2026

Umsóknarfrestur

25.09.2026

Hjúkrunarfræðingar - Gjörgæsla Hringbraut

Gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut leitar eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum sem eru sjálfstæðir í starfi, með ríka þjónustulund og góða samskiptahæfni. Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf með góðu samstarfsfólki og tækifæri til að efla faglega þekkingu í meðferð hágæslu- og gjörgæslusjúklinga. Boðið er upp á einstaklingsmiðaða aðlögun í starfi undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga.

Á deildinni er öflugt fræðslustarf og halda gjörgæsluhjúkrunarfræðingar og sérfræðingar í gjörgæsluhjúkrun utan um skipulag, leiðsögn og fræðslu. Starfsandinn er framúrskarandi og áhersla lögð á stuðningsríkt starfsumhverfi. Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga með markvissri handleiðslu og fræðslu samhliða starfi í formi starfsþróunarárs hjúkrunarfræðinga. starfsþróunarárs hjúkrunarfræðinga.

Gjörgæsla heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu. Á deildinni starfa tæplega 90 einstaklingar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum og á öðrum deildum spítalans. Deildin þjónar börnum og fullorðnum sem þarfnast gjörgæslumeðferðar af margvíslegum ástæðum. Þar er veitt almenn og sérhæfð gjörgæslumeðferð, meðal annars eftir hjartastopp og opnar hjartaaðgerðir, auk meðferðar með hjarta- og lungnavél. Deildin er opin allan sólarhringinn alla daga ársins. Vinnutímaskipulag er vaktavinna og unnið er á þrískiptum vöktum.

Gjörgæsludeildirnar við Hringbraut og í Fossvogi horfa í auknu mæli til samvinnu og stendur til að sameina deildirnar tvær við flutning í nýjan meðferðakjarna. Samstarf deildanna getur falið í sér að hjúkrunarfræðingar aðstoði gjörgæsluna á hinni starfsstöðinni þegar þörf krefur.

Störfin eru laus frá 1. janúar 2027 eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 80-100% vaktavinna skv. vaktaskipulagi deildar. Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur verið styttri eftir samsetningu vakta, sem styður við betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita einstaklingshæfða hjúkrunarmeðferð, ráðgjöf og stuðning til einstaklinga og aðstandenda þeirra

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Virk þátttaka í þróun hjúkrunar og uppbyggingu deildarinnar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Sérnám í gjörgæsluhjúkrun er kostur

  • Framúrskarandi samskiptahæfni

  • Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu

  • Frumkvæði, faglegur metnaður

  • Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Góð íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, sérfræðingur í hjúkrun, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 25.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Árni Már Haraldsson

deildarstjóri

Tölvupóstur: arnimh@landspitali.is

Sími: 543-7220/ 825-9577

Helga Hrönn Þórsdóttir

aðstoðardeildarstjóri

Tölvupóstur: helgahro@landspitali.is

Sími: 543-7220

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar - Gjörgæsla Hringbraut

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

15.09.2026

Umsóknarfrestur

25.09.2026