Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Ljósmóðir - tímabundin staða

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

10-100%

Starf skráð

28.10.2026

Umsóknarfrestur

09.11.2026

Ljósmóðir - tímabundin staða

Tímabundin staða ljósmóður við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi er laus til umsóknar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Ljósmæðravakt HSU er D1 fæðingarstaður með um það bil 80 fæðingar á ári.

Unnið er á dagvöktum alla daga vikunnar, ein ljósmóðir á kvöldvakt á mánudögum til fimmtudags en bakvaktir eru á öðrum tímum sólarhringsins. Alltaf er ljósmóðir á bakvakt fyrir bráðaútköll og önnur á fæðingarvakt.

Á Ljósmæðravaktinni er öll mæðravernd kvenna búsettra á Selfossi og nágrenni.

Einnig er mæðravernd á vegum deildarinnar í Uppsveitum, Hveragerði, Þorlákshöfn, Rangárþingi og Vík.

Ljósmæður deildarinnar sjá einnig um göngudeildarþjónustu fyrir þungaðar konur og áfram fyrstu tvær vikur eftir fæðingu. Samvinna er við áhættumæðravernd LSH.

Símaþjónusta er á deildinni á daginn og bráðasímtölum er svarað allan sólarhringinn af ljósmóður á bakvakt.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu hafa lokið ljósmæðramenntun.

Starfsleyfi Landlæknis.

Gerð er krafa um sjálfstæð vinnubrögð og fumkvæði í starfi.

Framúrskarandi samskiptahæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf.

Góð íslenskukunnátta.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.

Um tímabundna stöðu er að ræða, með möguleika á framlengingu.

Starfið er laust frá 1. nóv, upphafsdagur ráðningar og starfshlutfall er eftir samkomulagi.

Vinnufyrirkomulag er einnig eftir samkomulagi.

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Starfshlutfall er 10-100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Rakel Ásgeirsdóttir

Tölvupóstur: rakel.asgeirsdottir@hsu.is

Sími: 866 9903

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Ljósmóðir - tímabundin staða

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

10-100%

Starf skráð

28.10.2026

Umsóknarfrestur

09.11.2026