Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á brotaendurhæfingardeild Landakoti

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.08.2026

Umsóknarfrestur

07.09.2026

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á brotaendurhæfingardeild Landakoti

Leitum eftir framsæknum hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á hjúkrun aldraðra, stjórnun ásamt gæða- og umbótastarfi. Í boði er spennandi og krefjandi starf og mikil tækifæri til faglegrar þróunar. Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.

Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum hjúkrunar, gagnreyndum starfsháttum og öryggi sjúklinga.

Meginstarf á deildinni felst í meðferð og endurhæfingu aldraðra. Markmiðið er að auka hæfni einstaklingsins til þess að takast á við athafnir daglegs lífs og/ eða auka líkamlega, andlega og félagslega færni þeirra. Á deildinni starfar samhentur þverfaglegur hópur. Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum og framþróun.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinnur í samráði við hjúkrunardeildarstjóra að skipulagningu á starfsemi deildar

  • Ber ábyrgð á verkefnum sem hjúkrunardeildarstjóri felur honum samkvæmt sérstakri verkefnalýsingu

  • Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í hjúkrun

  • Ber ábyrgð á starfsemi, mönnun og rekstri deildar í fjarveru og í samráði við hjúkrunardeildarstjóra

  • Er ábyrgur fyrir skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar í fjarveru hjúkrunardeildarstjóra

  • Vinnur náið með deildarstjóra að mótun liðsheildar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur

  • Stjórnunarþekking og leiðtogahæfni

  • Góð íslenskukunnátta, bæði í máli og riti

  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni

  • Skipulögð, vönduð og öguð vinnubrögð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, stjórnunarstarf, aðstoðardeildarstjóri, teymisvinna, umbætur

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Túngötu, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Vilborg Þ. Hjaltalín

Tölvupóstur: kristhor@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á brotaendurhæfingardeild Landakoti

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.08.2026

Umsóknarfrestur

07.09.2026