Þjónustuaðili
Tryggingastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Lögfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.10.2026
Umsóknarfrestur
09.11.2026
Lögfræðingur
Hefur þú áhuga á að starfa í krefjandi lagaumhverfi þar sem reynir á góða þekkingu á stjórnsýslurétti og öguð og vönduð vinnubrögð? Þá gætir þú átt heima í lögfræðiteymi TR. Við erum að leita eftir lögfræðingi í afleysingar frá 1. janúar n.k. í rúmt ár.
Helstu verkefni og ábyrgð
Afgreiðsla stjórnsýsluerinda og álitsgerða.
Lögfræðileg ráðgjöf á sviði almannatrygginga og vegna réttinda á milli landa.
Eftirfylgni með framkvæmd laga.
Ritun greinargerða til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna kærumála.
Hæfniskröfur
Fullnaðarpróf í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi.
Góð þekking á sviði stjórnsýsluréttar og Evrópuréttar er kostur.
Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti.
Gott vald á ensku í ræðu og riti.
Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð skilyrði.
Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni eru skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið rökstudd. Allar umsóknir þurfa að berast í gegnum starfatorg.is
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttisstefnu TR við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Tryggingastofnun er þjónustustofnun sem gegnir lykilhlutverki í velferðarþjónustu Íslands. Hlutverk stofnunarinnar er að framfylgja lögum um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð og lögum um málefni langveikra barna.
Hjá TR starfa rúmlega 100 starfsmenn með hátt menntunarstig og mikla fagþekkingu. Starfsfólki er boðið upp á nútímalegt vinnuumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi, sveigjanlegur vinnutími og mikil samvinna.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þórir Ólason
sviðsstjóri sviðs stjórnhátta og stefnumótunar
Tölvupóstur: thorir.olason@tr.is
Sími: Sími: 6984087
Hólmfríður Erla Finnsdóttir
mannauðsstjóri
Tölvupóstur: holmfridur.finnsdottir@tr.is
Sími: Sími: 6604570
Þjónustuaðili
Tryggingastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Lögfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.10.2026
Umsóknarfrestur
09.11.2026