
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild lungna A3
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
08.09.2026
Umsóknarfrestur
18.09.2026
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild lungna A3
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings á göngudeild lungna á A3 í Fossvogi.
Við bjóðum góða starfsaðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum og tækifæri til að þróa starfsemi einingar í samvinnu við teymi hjúkrunarfræðinga og sérfræðinga.
Starfið felur í sér uppvinnslu, meðferð og eftirfylgd einstaklinga með lungnasjúkdóma sem þarfnast sérhæfðrar þjónustu uppvinnslu og meðferðar, sem dæmi eru þetta einstaklingar:
í greiningarferli vegna hnúts í lunga
í eftirliti eftir meðferð við lungnakrabbameini
með millivefssjúkdóma á sérhæfðum lyfjum
með sarklíki
með lungnaháþrýsting og eru á sérhæfðari meðferð
í uppvinnslu vegna mögulegrar lungnaskipti og eftirlit eftir lungnaskipti
sem hafa fengið alvarlega blóðtappa í lungu
með langvinna lungnateppu
Starfið felst einnig í því að koma að og þróa eftirfylgd þessara hópa enn frekar, bæta þjónustu og koma að tæknilegri framþróun. Unnið er í samvinnu við teymisstjóra lungna, lungnahjúkrunarfræðinga, í þéttu samstarfi við lungnalækna, lungnarannsókn og súrefnisþjónustu Landspítala.
Unnið er í dagvinnu og er vinnutími sveigjanlegur. Starfshlutfall er 50-100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrun, fræðsla, stuðningur og eftirfylgd við ákveðna hópa lungnasjúklinga á göngudeild
Fræðsla og kennsla til sjúklinga og aðstandenda
Þróun og uppbygging þjónustu á deild
Önnur verkefni á deild í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Góð samskiptahæfni
Sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
Reynsla af hjúkrun lungnasjúklinga er æskileg
Íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild lungna A3
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
08.09.2026
Umsóknarfrestur
18.09.2026