Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Viltu vera á skrá hjá HSN Dalvík-Fjallabyggð?

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

30-100%

Starf skráð

26.08.2026

Umsóknarfrestur

07.09.2027

Viltu vera á skrá hjá HSN Dalvík-Fjallabyggð?

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) tekur hér á móti almennum umsóknum frá einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa hjá stofnuninni á starfsstöð Dalvík-Fjallabyggð. Við leitum reglulega að öflugu starfsfólki í fjölbreytt störf innan heilbrigðisþjónustunnar og hvetjum fólk með mismunandi menntun og reynslu til að skrá áhuga sinn. Dæmi um starfssvið eru:

  • Lækningar

  • Hjúkrun

  • Sjúkraliðun

  • Heilbrigðisritun og móttökustörf

  • Aðhlynning

  • Önnur störf sem tengjast starfsemi HSN

Vinsamlegast tilgreinið í reitnum Annað sem þú vilt að komi fram hvaða störf eða starfssvið höfða helst til þín, ásamt upplýsingum um hvort þú sækist eftir starfi á Dalvík, Ólafsfirði eða Siglufirði (Fjallabyggð)

Almennar umsóknir eru varðveittar í umsækjendabanka og yfirfarnar þegar tækifæri kunna að skapast sem samræmast menntun, reynslu og áhugasviði umsækjenda. Ekki er send sérstök staðfesting eða svar vegna almennra umsókna.

Mikilvægt er að hafa í hug að laus störf sem auglýst eru sérstaklega þarf ávallt að sækja um sérstaklega, jafnvel þótt almenn umsókn liggi fyrir. Samkvæmt lögum ber ríkisstofnunum að auglýsa laus störf. Undanþágur frá auglýsingarskyldu eru takmarkaðar við ráðningar til skemmri tíma en tveggja mánaða, afleysingar sem vara skulu skemur en 12 mánuði og ráðningar í störf sem auglýst hafa verið með opinni auglýsingu á síðustu sex mánuðum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verkefni og ábyrgð eru mismunandi eftir störfum.

Hæfniskröfur

Hæfniskröfur eru mismunandi eftir störfum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn þessi berst til yfirhjúkrunarfræðing svæðis, deildarstjóra, framkvæmdastjóra hjúkrunar og framkvæmdastjóra mannauðs.

Starfshlutfall er 30-100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.09.2027

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Margrét Gylfadóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: kristin.m.gylfadottir@hsn.is

Sími: 432 4362

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Viltu vera á skrá hjá HSN Dalvík-Fjallabyggð?

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

30-100%

Starf skráð

26.08.2026

Umsóknarfrestur

07.09.2027