Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.10.2026

Umsóknarfrestur

30.11.2026

Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi

Langar þig að vinna á fjölbreyttum og skemmtilegum vinnustað, með frábæru fagfólki?

Við óskum eftir öflugum og áhugasömum hjúkrunarfræðingum til starfa á bráðalyflækningadeild A2 í Fossvogi og bjóðum jafnt velkomna reynslumikla sem og nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga því við teljum gott að hafa breidd í þekkingu og reynslu.

Deildin er 19 rúma lyflækningadeild ætluð sjúklingum með bráð og langvinn lyflæknisfræðileg vandamál sem þarfnast innlagnar á sjúkrahús og falla undir almennar lyflækningar. Hjúkrunarviðfangsefnin á deildinni eru mjög fjölbreytt.

Á deildinni starfar öflugur hópur í þverfaglegum teymum og mikil tækifæri eru til að þróast í starfi. Hópurinn á deildinni er samhentur og ríkir góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði. Á deildinni er líka öflug skemmtinefnd.

Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Vinnufyrirkomulag og starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi. Ráðið er í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu deildarinnar

  • Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð

  • Skrá hjúkrun í samræmi við reglur Landspítala

  • Fylgjast með nýjungum í hjúkrun

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar

  • Faglegur metnaður

  • Íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Inga Lúthersdóttir

Tölvupóstur: ingal@landspitali.is

Sími: 893-2306

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.10.2026

Umsóknarfrestur

30.11.2026