
Þjónustuaðili
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Kennari í íþróttum og tengdum greinum - afleysing á vorönn 2027
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.10.2026
Umsóknarfrestur
29.10.2026
Kennari í íþróttum og tengdum greinum - afleysing á vorönn 2027
Verkmenntaskólinn á Akureyri auglýsir stöðu íþróttakennara lausa til umsóknar. Helstu kennslugreinar eru almennar íþróttir, heilsa og lífsstíll auk faggreina íþrótta- og lýðheilsubrautar. Leitað er að einstaklingi með jákvætt hugarfar og mikla samskiptahæfni sem hefur áhuga á að vinna með og kenna ungu fólki. Um er að ræða 100% starf frá janúar 2027 í 6 mánuði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er að vel menntuðum kennara með full kennsluréttindi og með sérhæfingu á viðkomandi fræðasviði. Kennari ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi og námsmati í greininni og tekur þátt í faglegu samstarfi kennara við skólann. Sérstaklega er sóst eftir kennara sem sýnir frumkvæði í starfi, mjög góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Hæfniskröfur
Menntun og/eða starfsréttindi sem nýtast til í starfi.
Kennsluréttindi.
Frumkvæði, sveigjanleiki, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar.
Mjög góð hæfni í samskiptum og ríkur samstarfsvilji.
Hæfni til að vinna í teymi og taka þátt í þróunarstarfi.
Góð tölvukunnátta.
Hæfni í íslenskukunnátta í ræðu og riti.
Hafi áhuga á að vinna með ungu fólki.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt afriti af prófskírteinum og leyfisbréfum. Umsækjendur sendi jafnframt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og sýn viðkomandi á sjálfum sér sem kennara ásamt rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Sé umsækjandi í kennsluréttindanámi skal yfirlit yfir námsframvindu fylgja með umsókn ásamt staðfestingu frá háskóla á umsókn um kennsluréttindanám fyrir næsta skólaár.
Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Áskilinn er réttur til að nýta auglýsinguna í 6 mánuði frá ráðningu. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Við ráðningu verður horft til þess að sá sem starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum deildar og sviðs. Ráðið er í starfið frá 1. janúar 2027.
Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Umsækjandi þarf að skila inn sakavottorði með umsókn.
Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur fengið ISO-9001 gæðavottun. Nánari upplýsingar um skólann eru á heimasíðu hans vma.is. Einkunnarorð skólans eru Fagmennska - fjölbreytni - virðing.
Nánari upplýsingar um skólann er að finna á vma.is.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.10.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Kennari í íþróttum og tengdum greinum - afleysing á vorönn 2027
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.10.2026
Umsóknarfrestur
29.10.2026