Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Vélfræðingur

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.09.2026

Umsóknarfrestur

16.09.2026

Vélfræðingur

Rekstrar- og mannauðssvið Landspítala auglýsir laust til umsóknar fullt starf vélfræðings á vélaverkstæði sem tilheyrir tæknideild Landspítala.

Verkefni vélfræðings á Landspítala eru fjölbreytt og gefandi og oft unnin við aðstæður sem markast af þeirri þjónustu sem Landspítali veitir. Vélaverkstæði Landspítala ber ábyrgð á rekstri margra tæknikerfa Landspítala, svo sem loftræstikerfum, lyftum, lyfjaloftskerfum, kælikerfum o.fl. ásamt því að sinna viðhaldi ýmiss búnaðar. Leitað er eftir sjálfstæðum einstaklingi sem býr yfir lipurð í mannlegum samskiptum.

Starfshlutfall er 100% og er starfið laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Viðhald/eftirlit með tæknikerfum Landspítala

  • Dagleg þjónusta við deildir Landspítala

  • Bakvaktaþjónusta vélaverkstæðis

  • Þátttaka í gæða- og umbótastarfi

  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við teymisstjóra

Hæfniskröfur

  • Menntun í vélfræði

  • Reynsla af hússtjórnarkerfum

  • Reynsla af rekstri varavéla og gufukatla

  • Reynsla af rekstri frysti- og kælikerfa er kostur

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

  • Lipurð í mannlegum samskiptum

  • Góð tölvukunnátta og kunnátta á viðhaldsforrit

  • Góð íslenskukunnátta

  • Ökuréttindi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Tungumálakunnátta: Íslenska 4/5, enska 3/5

Staðsetning: Hringbrat, 105

Starfsmerkingar: Iðnaðarstörf, vélfræðingur, verkstæði

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristján H Theodórsson

Tölvupóstur: kiddi@landspitali.is

Bragi Thoroddsen

Tölvupóstur: bragith@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Vélfræðingur

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.09.2026

Umsóknarfrestur

16.09.2026