Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Skurðhjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - Skurðdeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

90%

Starf skráð

04.11.2026

Umsóknarfrestur

24.11.2026

Skurðhjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - Skurðdeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða skurðhjúkrunarfræðing á skurðdeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 90% eða eftir samkomulagi, um er að ræða dagvinnu og auk bakvakta aðra hvora viku. Staðan er laus frá 1. janúar 2027.

Hvetjum hjúkrunarfræðinga til að kynna sér þau hlunnindi sem fylgja starfinu, þar á meðal möguleika á húsnæðisaðstoð og flutningsstyrk fyrir aðflutta.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hjúkrunarfræðingur á skurðstofu sinnir útköllum á skurðstofu og sér um undirbúning sjúklinga fyrir aðgerðir inni á skurðstofu, aðstoðar við framkvæmd aðgerða og sér um verkfæri og tækjabúnað sem við á.

Hæfniskröfur

Krafist er íslensks hjúkrunarleyfis. Sérmenntun í skurðhjúkrun skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Skilyrði að hafa gilt ökuleyfi.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 90%

Umsóknarfrestur er til og með 24.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Lilja Ester Ágústsdóttir

Tölvupóstur: lilja.e.agustsdottir@hsa.is

Sigríður Kristinsdóttir

Tölvupóstur: sigridur.kristinsdottir@hsa.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Skurðhjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - Skurðdeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

90%

Starf skráð

04.11.2026

Umsóknarfrestur

24.11.2026