
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Ljósmóðir á fæðingarvakt
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
28.10.2026
Umsóknarfrestur
16.11.2026
Ljósmóðir á fæðingarvakt
Laust er til umsóknar starf ljósmóður á fæðingarvakt Landspítala. Á deildinni er veitt þjónusta við konur í eðlilegri fæðingu auk þjónustu við konur með áhættuþætti sem þurfa sérhæft eftirlit í fæðingu.
Starfsfólk deildarinnar telur um 100 manns og er fagmennska og teymisvinna höfð að leiðarljósi. Unnið er í vaktavinnu og möguleiki er á næturvaktahlutfalli. Í boði er einstaklingsaðlögun með reyndum ljósmæðrum. Við leggjum metnað í að taka vel á móti nýliðum, efla góðan starfsanda og skapa vinnuumhverfi þar sem vellíðan starfsfólks í vaktavinnu er höfð að leiðarljósi.
Ráðið er í starfið frá 1. janúar 2027 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umönnun kvenna í fæðingu og umönnun nýbura
Símaráðgjöf og móttaka kvenna í fæðingu og kvenna með bráð vandamál á síðari hluta meðgöngu
Þátttaka í faglegri þróun umönnunar sem veitt er á deildinni
Klínísk kennsla ljósmóðurnema og læknanema á deild
Hæfniskröfur
Íslenskt ljósmóðurleyfi
Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að vinna í teymi
Mjög góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf
Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
Reynsla af ljósmóðurstörfum er kostur
Reynsla af hjúkrunarstörfum er kostur
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Tungumálakunnátta: íslenska 5/5, enska 4/5
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta,, ljósmóðir
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Ljósmóðir á fæðingarvakt
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
28.10.2026
Umsóknarfrestur
16.11.2026