Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.10.2026

Umsóknarfrestur

23.10.2026

Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu

Laus er til umsóknar staða hjúkrunardeildarstjóra á geðgjörgæslu Landspítala við Hringbraut. Leitað er að kraftmiklum hjúkrunarfræðingi með reynslu af stjórnun og hæfni til að leiða krefjandi þjónustu við sjúklinga og aðstandendur. Viðkomandi þarf að búa yfir afburða samskiptahæfni, hafa hæfni til að leiða öfluga þverfaglega teymisvinnu og efla notendamiðaða nálgun, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu mannauðs í nánu samstarfi við aðra stjórnendur og starfsfólk.

Á geðgjörgæslu er veitt sérhæfð þjónusta í meðferð og umönnun einstaklinga með bráð geðræn einkenni vegna geðraskana. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar og hugmyndafræði um geðgjörgæslu eru í fyrirrúmi ásamt góðu samstarfi við aðstandendur. Á deildinni starfa um 50 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Vinnuandinn einkennist af samvinnu, lipurð, stuðningi, metnaði og góðum liðsanda.

Hjúkrunardeildarstjóri er í forystu fyrir starfsemi geðgjörgæslu ásamt yfirlækni deildarinnar og stýrir daglegum rekstri. Hjúkrunardeildarstjóri starfar í nánu samstarfi við forstöðuhjúkrunarfræðing, framkvæmdastjóra, yfirlækni deildar, aðra deildarstjóra í geðþjónustu og aðra stjórnendur fagstétta sem starfa á einingunni. Hjúkrunardeildarstjóri hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð.

Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. janúar 2027 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur kjarna 1 í geðþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfsemi, flæði og gæðum hjúkrunarþjónustu; setur markmið um umbætur og öryggi og tryggir eftirfylgni; stuðlar að þekkingarþróun og kennslu og hvetur til vísindastarfa

  • Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks á deildinni

  • Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar

  • Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun deildarinnar í samráði við yfirlækni, forstöðuhjúkrunarfræðing og framkvæmdastjóra

  • Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt

  • Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi innan geðþjónustu

  • Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan geðþjónustu og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli

  • Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur

  • Framhaldsmenntun í hjúkrun og/ eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur

  • Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur

  • Farsæl reynsla af þverfaglegri teymisvinnu

  • Reynsla af þjónustu við sjúklinga með alvarlegan og bráðan geðvanda og fjölþættar þjónustuþarfir

  • Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur

  • Mjög góð hæfni í samskiptum, jákvætt viðmót og lausnamiðun

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta: Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, deildarstjóri, stjórnunarstarf

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Halldóra Friðgerður Víðisdóttir

Tölvupóstur: halldfv@landspitali.is

Sími: 848-2636

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.10.2026

Umsóknarfrestur

23.10.2026